Guðmundur Pétursson
28.8.1911 - 12.03.2000
Staða
Bóndi, Ráðunautur
Staður
Staður: Fálkaklettur 14, 310-Borgarnesi, Borgarbyggð, Borgarnes, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Borgarbyggð, Borgarbyggð
Sveitarfélag 1950: Borgarneshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Fæddist í Vík í Mýrdal 28. ágúst 1911. Búfræðingur frá Hvanneyri 1936. Bóndi í Einarsnesi í Mýrasýslu 1938-1939 og á Höfðabrekku í Mýrdal, Vestur-Skaftafellssýslu 1940-1943. Smiður á Akranesi 1944-1946. Bústjóri á Hesti í Borgarfirði 1947-1960. Ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Borgarfjarðar 1960 til ársloka 1981, jafnframt frá 1966 bóndi á Gullberastöðum í Lundarreykjadal til 1988. Vann við efnarannsóknir o.fl. hjá Sementsverksmiðju ríkisins á Akranesi 1961-1964, þann tíma í hálfu starfi sem ráðunautur. Í hreppsnefnd, sýslunefnd og gegndi fleiri störfum í Andakílshreppi.
F. í Vík í Mýrdal. Búsettur á Akranesi 1961 og áfram. Búfjárræktarráðunautur.
Heimildir:
Morgunblaðið, minningargreinar. 8. apríl 2000.
Vestur Skaftfellingar I, 416.
Tengd aðföng

