Sveinbjörn Steingrímur Árnason

2.10.1899 - 03.06.1977
Staða
Forstjóri
Staður
Staður: Kothús, Suðurnesjabær Núverandi sveitarfélag: Suðurnesjabær, Suðurnesjabær Sveitarfélag 1950: Gerðahreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Sveinbjörn Steingrímur Árnason var f. í Kothúsum og var þar alla tíð. Viðbótarupplýsingar af titilblaði Stúdentasöfnunar 1976: Það var búskapur í Kothúsum þegar hann man fyrst eftir sér, þar var bæði húsdýrahald og árabátaútgerð. Móðir: Guðrún Sveinbjarnardóttir, f. 2. júní 1865, d. 13. mars 1934. Foreldrar hennar voru Sveinbjörn Þórðarson, f. í mars 1817 á Járngerðarstöðum í Grindavík, d. 14. janúar 1893, bóndi á Þorkötlustöðum í Grindavík og eftir 1859 í Sandgerði, Miðneshr., Gull., 1870, og 1890, og Helga Pálmadóttir, f. 28. janúar 1841 í Miðneshr., d. 21. júní 1880, húsfreyja. Guðrún giftist (14. september 1885) Steingrími Guðmundssyni, f. 15. september 1852 í Vatnsdal, Fljótshlíðarhr., Rang., d. um 1888, (fór til Vesturheims 1887). Þau eignuðust eina dóttur: Þorbjörgu, f. 8. desember 1885, d. 18. nóvember 1962. Guðrún giftist (15. október 1892) Árna Árnasyni, f. 13. nóvember 1855, d. 2. nóvember 1901, bónda og útgerðarmanni í Kothúsum, Gerðahr., Gull., 1901. Þau eignuðust einn son: Sveinbjörn Steingrím, f. 2. október 1899, d. 3. júní 1977. Guðrún fór til Vesturheims með fyrsta manni sínum en hann lést eftir árs dvöl ytra og kom hún heim aftur og var síðar húsfreyja í Kothúsum. Upplýsingar um tengilið: Elín Sigurðardóttir 2025,  elinsigurdar@simnet.is.   Heimildir: Gerðahreppur 90 ára, 161, 241, 251. Stúdentasöfnunin 1976, titilblað fyrir Sveinbjörn Árnason.
Tengd aðföng