Sigurbjörn Björnsson
3.8.1874 - 4.4.1957
Staða
Bóndi, Húsmaður
Staður
Núverandi sveitarfélag: Sveitarfélagið Hornafjörður, Sveitarfélagið Hornafjörður
Staður: Borgarhöfn 5 Gamli Garður, 781-Höfn í Hornafirði, Sveitarfélagið Hornafjörður, Suðursveit, Ísland
Sveitarfélag 1950: Borgarhafnarhreppur
Sveitarfélag 1950: Hafnarhreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Sigurbjörn Björnsson, f. 1874 í Borgarhöfn, d. 1957 á Höfn, 82 ára. For.: *Björn Björnsson, f. 1834, d. 1915, og kona hans, *Rannveig Þorláksdóttir, f. 1834, d. 1891. Í foreldrahúsum í Gamlagarði í Borgarhöfn 1874-91, hjá föður sínum þar 91-92, vinnumaður á Kálfafellsstað 94-95, í Lækjarhúsum í Borgarhöfn 95-97, í Austurbœnum á Smyrlabjörgum 97-99, á Sléttaleiti 99-00, í Vesturbœnum á Smyrlabjörgum 00-03, húsmaður í Lækjarhúsum í Borgarhöfn 04-05, bóndi í Austurhúsum á Kálfafelli 05-07, í Gamlagarði í Borgarhöfn 07-45, hjá syni sínum þar 45-48, á Höfn 48-57. Yfir höfuð sœmilega að sér, skráði séra Sveinn Eiríksson.
Kona 23.10. 1900: *Elísabet Guðrún Eiríksdóttir, f. 1879, d. 1970. Börn þeirra: *Pétur Óskar, f. 1909, *Ágústa Kristín, f. 1913, Björg Rannveig, f. 28.3. 1917, d. 5.4. 1917. Fósturdóttir: *Guðrún Jónsdóttir, f. 1904.
Heimildir eru samhljóða um, að Sigurbjörn fæddist sumarið 1874. Dagurinn var skráður 3.8., þegar hann var skírður. Skráð var 9.7., þegar hann var fermdur 1888. Í sóknarmannatölum hjá prófasti Eiríki var skráð 1.8., og eins er í handriti eftir Gísla Björnsson. Einnig er misræmi með dauðadag Sigurbjörns 1957, sem höfundur hafði skráð hjá sér sem 23.4., en síðar sá hann daginn hafðan 24.4. hjá Gísla.
Þórbergur Þórðarson skráði: “Sigurbjörn var verkmaður góður, prýðilegur smiður, músíkalskur ágætlega og söngmaður sem faðir hans, hæglátur, geðprúður og snyrtimenni. Hann var forsöngvari og meðhjálpari í Kálfafellsstaðar kirkju.” Sigurbjörn var stofnfélagi í kaupfélaginu. Hann lét 1935 setja upp fyrstu rafstöðina við Borgarhafnará. Hann smíðaði lengi utan um sveitunga sína. Þegar hann kom á Höfn, kenndi hann Nesjamönnum nýtt snið á kistusmíði, og festingar á kistur smíðaði hann, meðan honum entist aldur til.
Tengd aðföng
