Ólafur Valur Sigurðsson

12.12.1930 - 13.06.2017
Staða
Skipstjóri
Staður
Staður: Valhúsabraut 13, 170-Seltjarnarnesi, Seltjarnarnesbær, Seltjarnarnes, Ísland Núverandi sveitarfélag: Seltjarnarneskaupstaður, Seltjarnarnesbær Sveitarfélag 1950: Seltjarnarneshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Var í Reykjavík 1945. Stýrimaður og skipherra hjá Landhlegisgæslunni. Tók þátt í öllum þorskastríðunum. Hlaut fjölda viðurkenninga fyrir björgunarstörf og hönnun siglingatækja. Síðast búsett á Seltjarnarnesi. Ólafur Valur Sigurðsson fæddist í Reykjavík 12. desember 1930. Hann lést á Landspítalanum 13. júní 2017.   Foreldrar: Sigurður Ólafsson byggingaverkfræðingur, f. 30.12. 1901, d. 1970, og Rebekka Ágústsdóttir húsfreyja, f. 24.3. 1899, d. 1982. Systkini Ólafs eru Ágúst Gunnar Sigurðsson, f. 1928, d. 1947, og Vigdís Sigurðardóttir, f. 30.12. 1936. Hálfbróðir samfeðra Grétar Sigurðsson, f. 4.12. 1926, d. 17.12. 1994. Fyrri kona: Ingibjörg Jónasdóttir, f. 1932, d. 2011. Áttu þau Sigríði Ólafsdóttur hjúkrunarfr., f .15.12. 1953, maki Árni Rafnsson, f. 1952. Börn þeirra eru: a) Rafn, f. 1977, b) Elmar, f. 1982, maki Sigrún Huld Gunnarsdóttir, þau eiga tvær dætur, Maju og Köru. Uppeldissonur Tómas Ían Brendansson. c) Árni Valur, f. 1988. d) Páll Frímann, f. 1991. Dóttir Sigríðar er Ingibjörg María Gousbier, f. 30.5. 1970, maki Patrick Gousbier, börn Adeleid Sigríður, Madelein Sóley, Babtist Máni. Árið 1956 kvæntist hann Sigurást Gísladóttur, f. 15.11. 1930, d. 4.2. 2004. Eignuðust þau fjóra drengi. 1) Óskírður Ólafsson, f./d. 27.10. 1957. 2) Sigurður Ólafsson, skipstj. og útgerðarfr., f. 27.7. 1959. Hann á þrjár dætur og uppeldisdóttur: a) Helga Rán, f. 13.10. 1981. Maki Einar Oddsson. b) Andrea Rós, f. 9.6. 1989, maki Antonio Fattoruso, dóttir Anna Bella. c) Gunnlaug Birna, f. 25.1. 2000. d) Hólmfríður Rebekka Víkingsdóttir, f. 6.4. 1994. 3) Gísli Ólafsson, f. 3.3. 1961, véla- og skipaverkfr., maki Agnes Garðarsdóttir, f. 14.10. 1964. Börn þeirra: a) Garðar, f. 7.2. 1992, og Sigurást Sóley, f. 24.8. 1994. 4) Ólafur Valur Ólafsson, f. 21.8. 1963, ferða- og hótelfr., maki Sigurlín Ólafsdóttir, f. 4.5. 1958. Ólafur Valur var í sambúð með Jónínu Steinunni Þorsteinsdóttur (f. 1936) er hann lést. Óli Valur ólst upp í vesturbæ Reykjavíkur. Hann lauk stúdentspr. frá MR 1951, farmannapr. frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1959 og skipstjórnarprófi á varðskip 1965. Ólafur byrjaði til sjós 1951, var í farmennsku í fjögur ár. Frá 1957 1. stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni. Þá lengst af á V.S. Tý. Hann tók þá þátt í öllum þorskastríðunum. Einnig stýrimaður og skipherra á þyrlum og flugvélum Landhelgisgæslunnar. Frá 1985-1994 fastráðinn skipherra hjá Landhelgisgæslunni. Ólafur Valur hlaut margar viðurkenningar fyrir björgunarstörf og hönnun siglingatækja. Gegndi formennsku í Stýrimannafélagi Íslands 1968-75, sat í ritnefnd sjómannablaðsins Víkings. Hann þýddi Stóru skipabókina ásamt Bárði Jakobssyni lögfræðingi og kom að ritunum Landið þitt, Alfræðiorðabókinni og Ensk-íslenskri orðabók Arnar og Örlygs. Ólafur hafði mikinn áhuga á siglingum, hann ásamt konu sinni, Sigurást, sigldi mikið á skútum, meðal annars frá Seattle til Alaska Þá var hann mikill ÍR-ingur og stundaði skíðaiðkun af kappi í Hamragili ásamt því að koma þar upp trjárækt. Hann var áhugamaður um varðveislu sögu Landhelgisgæslunnar og V.S. Óðins. Heimildir: https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1645796/?item_num=1&searchid=d7b990570bfcace2a4c58337a3ffdf3b9afa9fca https://www.islendingabok.is/search
Tengd aðföng