Þórunn Vigfúsdóttir
17.4.1903 - 12.01.2000
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Þórunn tók virkan þátt í félagslífi sveitar sinnar, einkum á vettvangi Kvenfélags Lunddæla og sat áratugum saman í stjórn þess, lengi sem formaður. Þá starfaði hún að málefnum Sambands borgfirskra kvenna og var formaður þess 1949-1952. Var hún og kjörin heiðursfélagi í þessum samtökum báðum.
Myndlistin var Þórunni jafnan hugleikin og á efri árum sínum sinnti hún því áhugamáli nokkuð. Notaði hún gjarna þurrkaðar jurtir og fleiri jarðefni, með hefðbundnum litum í myndir sínar.
Heimildir:
http://www.mbl.is/greinasafn/grein/514784/
Tengd aðföng


