Þorkell Jóhannesson

6.12.1895 - 31.10.1960
Staða
Háskólarektor
Staður
Staður: Oddagata 2, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vatnsmýri, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Þorkell Jóhannesson var f. á Syðrafjalli í Aðaldal. Stúd. 1922; mag. art. 1927; doktorspr. 1933. Prófessor 1944, rektor Háskóla Íslands frá 1954 til dd. Gaf út bókina Örnefni í Vestmannaeyjum 1938. Þorkell Jóhannesson háskólarektor fæddist á Syðra-Fjalli í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu 6.12. 1895. Hann var sonur Jóhannesar Þorkelssonar, hreppstjóra þar, og Svöfu Jónasdóttur húsfreyju. Jóhannes var bróðir Indriða, skálds, ættfræðings og oddvita á Ytra-Fjalli, föður Indriða frá Fjalli, rithöfundar og ættfræðings sem tók saman Ættir Þingeyinga. Jóhannes var sonur Þorkels, bónda á Syðra-Fjalli, bróður Jóhannesar, hreppstjóra í Saltvík, afa Þorsteins Jóhannessonar, prófasts í Vatnsfirði. Systir Þorkels var Sigurbjörg, móðir Sigurjóns skálds og alþm. á Litlulaugum, föður Braga, fyrrv. ráðherra, og Halldóru skólastjóra. Sigurbjörg var einnig móðir Guðmundar skálds á Sandi í Aðaldal, föður Bjartmars alþm. og Heiðreks skálds. Þorkell var af Sílalækjarætt. Eiginkona Þorkels var Hrefna Bergsdóttir húsfreyja frá Ökrum á Mýrum. Þorkell lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1922, stundaði nám í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands og lauk meistarprófi 1927 og dr. phil-prófi frá Kaupmannahafnarháskóla 1933. Þorkell kenndi við Samvinnuskólann í Reykjavík hjá Jónasi frá Hriflu 1925-26, tók við stjórn skólans er Jónas varð ráðherra, 1927-31, var bókavörður við Landsbókasafnið 1932-43, landsbókavörður 1943-44, prófessor í sögu við Háskóla Íslands 1944 og háskólarektor frá 1954-60. Þorkell var forseti Þjóðvinafélagsins um skeið og forseti Sögufélagsins. Hann var afkastamikill rithöfundur um sagnfræðileg efni. Hann er m.a. höfundur VI. og VII. bindis Sögu Íslendinga, skrifaði sögu Búnaðarfélags Íslands og Búnaðarsamtaka á Íslandi, um íslenska verslunarsögu og verslunarsamvinnu 1795-1945 og um sjálfstæðisbaráttu Íslendinga, endurreisn Alþingis. Þá gaf Almenna bókafélagið út tveggja binda verk hans, Lýðir og landshagir, árið 1965. Þorkell lést 31.10. 1960.   Heimildir: Kennaratal á Íslandi (1985) II, 268. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1490075/  
Tengd aðföng