Sophie Bjarnason

Staða
Tannsmiður
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Tannsmiður eða tannlæknir Sögunni víkur nú aftur til Ísafjarðar. Bæjarfógetinn þar ritaði landlækni 14. maí 1912 og skýrði frá því að Sophie (ætíð ritað svo í skjölum landlæknis) Bjarnason hefði sótt um leyfi til að stunda tannlækningar og lagt fram vottorð um nám eða starf frá frú Laure Sörensen og H. Thorlacius lækni í Kaupmannahöfn. Fram kemur einnig, að Sophie hafði keypt öll nauðsynleg áhöld, stól og áhöld til fyllinga og tannsmíði. Bæjarfógeti telur tannsmíðar hinar þarflegustu og einnig væri þarft verk að kenna börnum að hirða tennur sínar, en óskar annars eftir upplýsingum um hvernig við þessu skuli brugðist. Landlæknir sendi ráðherra álitsgerð um málið, og er hún dagsett 9. ágúst 1912. Þar kemur fram, að L. Sörensen finnist ekki á skrám yfir danska tannlækna og að H. Thorlacius staðhæfi, að Sophie hafi einungis aðstoðað sig við svæfingar. Landlæknir kveðst því ekki geta mælt með leyfisveitingu, enda veitti stjórnarráðið ekki leyfið. Sophie var þó ekki af baki dottin og sótti um leyfi til að mega stunda tannsmíðar 24. október 1913. Landlæknir var þessu meðmæltur (sjá bréf, dagsett, 9. desember), en tók jafnframt fram, að hér væri um iðn að ræða, sem heimilt væri að stunda án leyfis. Stjórnarráðið veitti þó umbeðna heimild og tjáði landlækni þetta með bréfi, dagsettu 24. mars 1914. Brynjúlfur Björnsson kveður Sophie Bjarnason (f. Hoegdenskov) hafa sest að í Reykjavík ásamt manni sínum Pétri Bjarnsyni frá Ísafirði. Hún hafi í fyrstu einskorðað sig við tannsmíðar, en fengið Þórð Thoroddsen lækni til að draga út tennur. Síðar hafi Sophie farið að draga sjálf út tennur og notað nafn Þórðar læknis sem skálkaskjól. Hann kveður Sophie einnig hafa um skeið keppt við tannlækna í Reykjavík með undirboðum. Guðmundur Hraundal upplýsir, að Sophie hafi rekið tannsmíðastofu í Reykjavík 1914-1930 og annast upp frá því umboðssölu á gulli til tannlækna. Sophie var myndarleg sómakona að sögn Guðmundar. [Heimild: Lýður Björnsson] Sofie Bjarnason tannsmiður í Reykjavík. Var lengi með verkstæði á Vesturgötu. Verslaði einnig m.a. Með gull o.fl. Til tannsmíða. Maður hennar hét Pétur Bjarnason kallaður "klíningur" Sofie stundaði tannsmíðar allt til ársins 1950. [Heimild: Aðfangabók minjanefndar Tannlæknafélags Íslands.] Heimildir: Lýður Björnsson. "Tannlækningar á Íslandi." http://www.tannsi.is/files/saga_2044837163.pdf. Sótt 11.8. 2011. Aðfangabók minjanefndar Tannlæknafélags Íslands.
Tengd aðföng