Bernharð Stefánsson
8.1.1889 - 23.11.1969
Staða
Bóndi, Alþingismaður
Staður
Staður: Hjarðarhagi 56, 107-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Sveitarfélag 1950: Akureyri
Núverandi sveitarfélag: Akureyrarbær, Akureyrarbær
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
For.: Stefán Bergsson (f. 12. apríl 1854, d. 21. okt. 1938) bóndi þar og k. h. Þorbjörg Friðriksdóttir (f. 24. júní 1856, d. 5. júlí 1934) húsmóðir.
K. (3. mars 1917) Hrefna Guðmundsdóttir (f. 1. ágúst 1895, d. 2. mars 1981) húsmóðir. For.: Guðmundur Guðmundsson og k. h. Guðný Loftsdóttir. Systir Barða Guðmundssonar alþm.
Börn: Berghildur (1917), Steingrímur (1919), Erla (1927).
Nám í Gagnfræðaskólanum á Akureyri 1904—1906. Kennarapróf Flensborgarskóla 1908. Framhaldsnám við kennaraháskólann í Kaupmannahöfn vorið 1912.
Kennari í Skriðuhreppi 1908—1910 og í Öxnadal 1910—1923. Bóndi á Þverá í Öxnadal 1917—1935. Útibússtjóri Búnaðarbankans á Akureyri 1930—1959.
Oddviti Öxnadalshrepps 1915—1928. Sýslunefndarmaður 1922—1928. Skip. 1927 í mþn. í landbúnaðarmálum, 1936 í mþn. til þess að gera tillögur um tekjuöflun bæjar- og sveitarfélaga, 1937 í mþn. í bankamálum og 1943 í mþn. til þess að gera tillögur um launakjör alþingismanna. Í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins 1938—1940. Í skilnaðarnefnd 1944. Í Norðurlandaráði 1953—1959.
Alþm. Eyf. 1923—1959 (Framsfl.).
Forseti Ed. 1947—1953 og 1956—1959. 2. varaforseti Nd. 1930, 1. varaforseti Sþ. 1947—1948, 1. varaforseti Ed. 1953—1956.
Samdi Endurminningar í tveimur bindum (1961 og 1964).
Tengd aðföng






