Jörundur Brynjólfsson

21.2.1884 - 03.12.1979
Staða
Alþingismaður, Bóndi
Staður
Staður: Kaldaðarnes, Kallaðarnes, 801-Selfossi, Sveitarfélagið Árborg, Flói, Ísland Núverandi sveitarfélag: Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Árborg Sveitarfélag 1950: Sandvíkurhreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: F. á Starmýri í Álftafirði eystra. For.: Brynjólfur Jónsson (f. 23. nóv. 1844, d. 6. des. 1913) bóndi þar og k. h. Guðleif Guðmundsdóttir (f. 28. ágúst 1852, d. 2. sept. 1948) húsmóðir. K. 1. (20. okt. 1910) Þjóðbjörg Þórðardóttir (f. 20. okt. 1889, d. 4. júní 1969) kennari. Þau skildu. For.: Þórður Narfason og k. h. Guðrún Jóhannsdóttir. K. 2. (7. febr. 1954) Guðrún Helga Dalmannsdóttir (f. 7. sept. 1892, d. 24. júlí 1968) húsmóðir. For.: Dalmann Ármannsson og k. h. Steinunn Stefánsdóttir. Börn Jörundar og Þjóðbjargar: Guðrún (1911), Haukur (1913), Guðrún (1916), Guðleif (1916), Þórður (1922), Auður (1923). Sonur Jörundar og Guðrúnar: Gaukur (1934). Dóttir Jörundar og Ingiríðar Guðmundsdóttur: Unnur (1929). Búfræðipróf Hvanneyri 1906. Kennarapróf KÍ 1909. Nám í kennaraháskólanum í Kaupmannahöfn 1911—1912. Kennari í Nesjahreppi 1907—1908, við barnaskólann í Reykjavík 1909—1919. Bóndi í Múla í Biskupstungum 1919—1922, í Skálholti 1922—1948 og í Kaldaðarnesi í Flóa 1948—1963. Í bæjarstjórn Reykjavíkur 1916—1919. Skip. 1917 í verðlagsnefnd og kosinn í bjargráðanefnd. Yfirskoðunarmaður landsreikninganna, síðar ríkisreikninganna 1917—1925 og 1937—1963. Kosinn 1927 í mþn. í landbúnaðarmálum. Skip. 1929 í endurskoðunarnefnd laga um veiði í vötnum og ám. Kosinn 1933 í launamálanefnd og 1942 í raforkumálanefnd. Í stjórn Veiðifélags Árnesinga 1950—1976, formaður frá 1958. Í Norðurlandaráði 1953—1954. Alþm. Reykv. 1916— 1919 (Alþfl.), alþm. Árn. 1923—1956 (Framsfl.). Forseti Nd. 1931—1942 og 1943—1945, forseti Sþ. 1953—1956. 2. varaforseti Nd. 1928—1929, 1. varaforseti Nd. 1930, 1. varaforseti Sþ. 1948—1949 og 1950—1953. Ritstjóri: Unga Ísland (1916—1918).
Tengd aðföng