Snorri Hallgrímsson
9.10.1912 - 27.01.1973
Staða
Læknir
Staður
Staður: Ásvallagata 26, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Fæddur á Hrafnsstöðum í Svarfaðardal
9. október 1912, dáinn í Reykjavík 27. janúar 1973. Foreldrar Hallgrímur
(8. ágúst 1864/ 17. febrúar 1936) bóndi þar Sigurðsson og kona hans Þorláksína
(7. nóvember 1869/ 13. nóvember) Sigurðardóttir bónda á Ölduhrygg í Svarfaðardal
Jónssonar. Stúd. MA stfd. 1932, 2.eink. (5.25). Cand. med. HÍsl.
s. 1936, 1. eink. (170 2/3 st.). Alm. lækningal. 12. mars 1941. Vk.
sérfr. í handlækningum og bæklunarsjúkdómum 15. júní 1948. Dr. med.
við Karolinska 31. mars 1943. Stgm. héraðsl. í Hvammstangahéraði
júlí 1936. Blegd. Hosp. sept. 1936. Aðstl. Skanderborg Amts
og Bys. Sgh. okt. 1936-apríl 1937. Kand. Orthopædisk Hosp. í Árósum
maí 1937-apríl 1939. Jafnframt aðstl. taugalæknis þar nóvember 1937-janúar
1938. Stgm. héraðsl. í Breiðumýrarhéraði júní-nóvember 1939 og vann
þá jafnframt að rannsóknum sauðfjársjúkdóma. Herlæknir í sjálfboðaliði
Svía í Finnlandsstyrjöldinni 1939-1940. Aðstl. Karsjukh. í Sth. bækld.
maí 1940-janúar 1941. Södra Barnbördshuset Sth. febr. 1941. St.
Eriks sjukh. Sth. taugasjúkd. mars-júlí 1941. Aðstl. Karsjukh. bækld.
ágúst 1941-júlí 1942 og des. 1942-janúar 1943, skapnaðgd. janúar-mars 1943.
St. læknir í Reykjavík maí 1943-1947, áfram eingöngu sem sérfræðingur
1948-1962. 2. aðstl. Lspít. handld. 1944-1945, 1. aðstl., síðar deildarlæknir,
janúar 1947-ágúst 1951. Prófessor í handlæknisfræði við HÍsl. og
jafnframt yfirlæknir við handld. Lspít. september 1951 til æviloka. Fjöldi
námsferða og læknaþinga, m.a. til Svíþjóðar mars-ágúst 1946 (berklahandl.
og skapnaðaraðg.), Bandaríkjunum september 1951-júní 1952 (nýjungar í handlæknisfræði
með styrk frá Rockefeller Foundation) og mars 1963 (magafrystingaraðgerðir
og æðaaðgerðir). Prófdómari við læknadeild HÍsl. 1948-1951. Í
læknaráði 1952, í byggingarnefnd Lspít. 1952 og Tilraunastöðvar háskólans
í meinafræði að Keldum 1958. Í stjórn Nordisk Kirurgisk Forening
frá 1955. Forseti þings skurðlækna á Norðurlöndum, sem haldið var
í fyrsta sinn 2. júní 1972. Form. Vísindasjóðs frá stofnun hans 1957
til æviloka. Í stjórn LfR 1948-1950. Form. Skurðlæknafélags
Íslands 1957-1961. Fulltrúi HÍsl. í vísindanefnd Evrópuráðs 1960
og 1961 og fulltrúi Íslands í vísindanefnd NATO 1963. Finnski frelsiskrossinn
með sverði 4. fl. 1940, með rauðum krossi 4. fl. s.á. Minnispeningur Finnlandsstyrjaldarinnar
1939-1940 með sverði s. á. R. fálk. 1. janúar 1957. R. Kungl Nordstjärneorden
1957. Stórr. fálk. 1. jan. 1972. Rit: Studies on reconstructive
and stabilizing operations on the skeleton of the foot. With special
reference to subastragalar arthrodesis in the treatment of foot defromities
following infantile paralysis (doktorsrit). Milli 10 og 20 ritgerðir
í innlend og erlend (einkum skandínavísk) tímarit um efni úr sérgrein sinni.
K. 14. janúar 1942 Þuríður (27. júlí 1915) Finnsdóttir framkvæmdarstjóra
á Ísafirði, alþingismaður og ráðherra, Jónssonar og k.h. Auðar Sigurgeirsdóttur.
B.þ. 1. Margrét (13. mars 1944), 2. Hallgrímur (29. janúar 1947),
3. Gunnar (24. júní 1948), 4. Auður (10. júlí 1953), 5. Finnur (28. ágúst
1954). Snorri var faðir Margrétar og Finns lækna og tengdafaðir
Halldórs læknis Baldurssonar.
Tengd aðföng


