Pálmi Hannesson
3.1.1898 - 22.11.1956
Staða
Rektor
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Fæddur á Skíðastöðum í Skagafirði
3. jan. 1898, d. 22. nóv. 1956.
Faðir: Hannes Pétursson (f. 24.
ágúst 1857, d. 1. maí 1900) bóndi þar, bróðir Halldóru konu Ólafs Briems
alþm. og Herdísar konu Hálfdanar Guðjónssonar alþm.
Móðir: Ingibjörg Jónsdóttir (f.
28. jan. 1857, d. 11. okt. 1945) húsmóðir.
Bróðir Péturs Hannessonar vþm.
Maki: (17. ágúst 1926) Ragnhildur
Skúladóttir Thoroddsen (f. 26. ágúst 1899, d. 4. sept. 1966) húsmóðir.
Foreldar hennar: Skúli Thoroddsen
alþm. og k. h. Theodora Thoroddsen.
Systir Katrínar alþm., Sigurðar
alþm. og Skúla alþm. Thoroddsens.
Börn: Jón Skúli (1927), Ingibjörg
Ýr (1931), Pétur Jökull (1933), Skúli Jón (1938), Pálmi Ragnar (1940).
Dóttir Pálma og Mattheu Kristínar
Pálsdóttur: Rannveig (1924), kjördóttir stjúpföður síns, Edvalds Torps.
Nám: Gagnfræðapróf Akureyri 1915.
Stúdentspróf MR 1918. M.Sc.-próf í dýrafræði Hafnarháskóla 1926, en las
auk þess grasafræði, jarðfræði, eðlisfræði og efnafræði.
Störf: Kennari við Gagnfræðaskólann
á Akureyri 1926—1929. Rektor Menntaskólans í Reykjavík frá 1929 til æviloka.
Ráðunautur Búnaðarfélags Íslands
um veiðimál 1926—1929. Í mþn. til undirbúnings veiðilöggjöf 1930—1932
og 1954—1955. Í stjórn Ferðafélags Íslands frá 1932 til æviloka. Formaður
veiðimálanefndar frá upphafi hennar 1933 til æviloka. Í útvarpsráði 1934—1943.
Í menntamálaráði 1934—1943 og frá 1946 til æviloka. Forseti Hins íslenska
þjóðvinafélags 1935—1940. Í Rannsóknaráði ríkisins frá upphafi þess 1940
til æviloka. Bæjarfulltrúi í Reykjavík 1946—1950. Í orðunefnd frá 1952.
Alþm. Skagf. 1937—1942 (Framsfl.).
Heimildir: Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn
nr.17843-21805.
www.althingi.is
Tengd aðföng





