Benedikt Oddsson
23.12.1836 - 1924 - 1925
Staða
Bóndi, Vesturfari
Staður
Staður: Gjarðey, 371-Búðardal, Dalabyggð, Skógarströnd
Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð
Sveitarfélag 1950: Skógarstrandarhreppur
Annað nafn
Benedict Olson
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Bóndi í Fremri-Langey 1856-1857, Hvalgröfum 1857-1858. Flutti þaðan í Bíldsey og síðan bóndi í Gjarðey 1865-1882. Fluttist vestur um haf 1882. Bjó í Hasting, Ontario, Kanada. Í Kanada tók hann upp nafnið Benedict Olson og breytti fæðingarári sínu í 1841. Lagði m.a. stund á leirkerasmíði í Gjarðey fyrir 1879. For. Oddur Ormsson og Ingibjörg Jónsdóttir þá í Fremri-Langey. Kona Benedikts var Ingibjörg Þorkelsdóttir frá Syðra-Vallholti í Skagafirði. Áttu 4 syni, að viðbættum nokkrum sem dóu ung. Þau skildu. Barnsmóðir og síðar kona Benedikts var Ólín Kristín Andrésdóttir (Olina Christina Olson). Þau áttu tvær dætur hér heima og a.m.k. eina vestanhafs. Lést fyrir 1925.
Heimildir:
Jón Guðnason. 1961. Dalamenn II. Bls. 243.
Jón Guðnason. Dalamenn III. Bls.
Lögberg 5.2.1925.
Manntal í Kanada 1901. Hastings (North)
Tengd aðföng