Árni Ragnar Árnason
4.8.1941 - 16.08.2004
Staða
Alþingismaður
Staður
Staður: Heiðarhjalli 17, 200-Kópavogi, Kópavogsbær
Núverandi sveitarfélag: Kópavogsbær, Kópavogsbær
Sveitarfélag 1950: Kópavogshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: For.: Árni Ólafsson
(f. 4. nóv. 1919) skrifstofustjóri og k. h. Ragnhildur Ólafsdóttir (f.
5. okt. 1918) húsmóðir.
K. (24. nóv. 1962)
Guðlaug Pálína Eiríksdóttir (f. 23. nóv. 1944) skrifstofumaður. For.: Eiríkur
Björn Friðriksson og k. h. Jófríður Helgadóttir.
Börn: Guðrún (1963),
Hildur (1966), Björn (1971), Árni (1973).
Samvinnuskólapróf 1960.
Starfsmaður Sparisjóðsins í Keflavík 1960-1966. Fulltrúi og síðar útibússtjóri
Verslunarbanka Íslands í Keflavík 1966-1971. Rak eigin bókhaldsstofu í
Keflavík og útibú víðar 1971-1985. Fjármálastjóri hjá varnarliðinu, Vörumarkaðnum
og Ragnarsbakaríi 1985-1988. Deildarstjóri hjá varnarliðinu 1988-1991 Í
stjórn Hitaveitu Suðurnesja frá 1992.
Formaður Heimis, félags ungra sjálfstæðismanna í Keflavík, 1966-1971. Í
stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna 1969 og fyrsti varaformaður þess
1971-1973. Fyrsti formaður kjördæmissamtaka ungra sjálfstæðismanna í Reykjaneskjördæmi
1973-1975. Í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Keflavík frá 1964, formaður
þess 1987-1991. Í kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi
frá 1966. Bæjarfulltrúi í Keflavík 1970-1978. Einn af stofnendum JC Suðurnesja
og fyrsti forseti félagsins. Sat í landsstjórn JC Íslands um árabil. Landsforseti
íslensku JC-hreyfingarinnar 1976-1977. Sat þing Vestur-Evrópusambandsins
1993. Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1994. Fulltrúi í Þingmannasamtökum
Norður-Atlantshafsríkjanna 1993 og 1995.
Alþm. Reykn. 1991-2003, alþm. Suðurk. 2003-2004 (Sjálfstfl.).
Umhverfisnefnd 1991-1995 og 2003-2004, sjávarútvegsnefnd 1991-2004 (form.
2003-2004), utanríkismálanefnd 1992-2002 og 2003-2004, iðnaðarnefnd 1995-1999
og 1999-2003 og 2004, allsherjarnefnd 1995-1999, efnahags- og viðskiptanefnd
2002-2003, menntamálanefnd 2004.
Íslandsdeild NATO-þingsins 2001-2004 (form 2003-2004).
Tengd aðföng
