Hannes Jónsson

17.11.1893 - 17.11.1977
Staða
Kaupfélagsstjóri, Alþingismaður
Staður
Staður: Þórormstunga, 541-Blönduósi, Húnabyggð, Vatnsdalur, Ísland Núverandi sveitarfélag: Húnabyggð, Húnabyggð Sveitarfélag 1950: Áshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Hannes Jónsson fæddist í Þórormstungu í Vatnsdal 17. nóv. 1893, d. 17. nóv. 1977. For.: Jón Hannesson (f. 14. (kb. 15.) okt. 1862, d. 28. júní 1949) bóndi þar og k. h. Ásta Margrét Bjarnadóttir (f. 12. júní 1864, d. 2. jan. 1952) húsmóðir. K. (17. júní 1923) Hólmfríður Jónsdóttir (f. 22. okt. (kb. 3. nóv.) 1900, d. 11. ágúst 1958) húsmóðir. For.: Jón Sigurgeirsson og k. h. Stefanía Stefánsdóttir. Börn: Ásta (1924), Jón (1926), Þorbjörg (1927), Auður (1930) Benný (1934), Haukur (1936). Gagnfræðapróf Akureyri 1915. Samvinnuskólapróf 1919. Starfsmaður Sláturfélags Austur-Húnvetninga 1915-1917, endurskoðandi þess 1918 og forstjóri 1919-1922. Kaupfélagsstjóri Kaupfélags Vestur-Húnvetninga 1923-1933. Bóndi í Kirkjuhvammi á Vatnsnesi 1929-1948 og í Þórormstungu 1943. Forstjóri síldarverksmiðjunnar í Nesi í Norðfirði 1938-1941, starfaði jafnframt við endurskoðun í Landsbankanum. Rak samtímis síldarútgerð frá Norðfirði með leiguskipum frá Færeyjum. Fulltrúi í endurskoðunardeild fjármálaráðuneytisins 1943-1963. Fékk leyfi frá starfi 1. nóv. 1960 til 1. júní 1962 og var þann tíma sveitarstjóri í Ólafsvík. Yfirskoðunarmaður ríkisreikninga 1930-1933. Í mþn. um skipulag og sölu landbúnaðarvara 1932-1934. Endurskoðandi Síldarverksmiðja ríkisins 1935-1939. Í stjórn Alliance hf. fyrir Landsbankann 1939-1941. Vann eftir 1963 ýmis endurskoðunarstörf fyrir bændasamtökun o. fl. Alþm. V.-Húnv. 1927-1937 (Framsfl., Bændafl.). Heimildir: Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr.17843-21805 http://www.althingi.is/cv.php4?nfaerslunr=233 (sótt 27. júlí 2004)
Tengd aðföng