Skúli Guðmundsson
10.10.1900 - 05.10.1969
Staða
Kaupfélagsstjóri, Alþingismaður
Staður
Núverandi sveitarfélag: Húnaþing vestra, Húnaþing vestra
Sveitarfélag 1950: Ytri-Torfustaðahreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Skúli Guðmundsson fæddist á Svertingsstöðum í Miðfirði 10. okt. 1900, d. 5. okt. 1969. For.: Guðmundur Sigurðsson (f. 26. mars 1875, d. 14. jan. 1923) bóndi þar og k. h. Magdalena Guðrún Einarsdóttir (f. 18. júlí 1868, d. 11. okt. 1929) húsmóðir. K. 1. (23. júní 1929) Hólmfríður Jakobína Hallgrímsdóttir (f. 10. jans. 1896, d. 14. nóv. 1930) húsmóðir. For.: Hallgrímur Benediktsson og k. h. Guðný Bjarnadóttir. K. 2. (7. júní 1940) Jósefína Antonía Helgadóttir, f. Zoëga (f. 30. júlí 1893, d. 17. sept. 1974) húsmóðir. For.: Helgi Zoëga og k. h. Geirþrúður Zoëga, f. Clausen, dóttir Holgers Clausens alþm. Móðursystir Geirþrúðar H. Bernhöft vþm. Kjördóttir Skúla og Jósefínu: Guðrún (1943).
Verslunarskólapróf VÍ 1918.
Vann hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga 1915-1922. Kaupmaður á Hvammstanga 1924-1927 og rak jafnframt landbúnað. Starfsmaður hjá Akurgerði sf. í Hafnarfirði 1927-1930, hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga í Reykjavík 1930-1933. Kaupfélagsstjóri á Hvammstanga 1934-1947. Skip. 2. apríl 1938 atvinnumálaráðherra, fór einnig með heilbrigðismál, lausn 17. apríl 1939. Gegndi störfum fjármálaráðherra vegna veikindaforfalla 14. apríl til 8. sept. 1954.
Formaður innflutnings- og gjaldeyrisnefndar 1935-1937. Í mþn. um arðskiptafyrirkomulag í atvinnurekstri 1937. Í togaraútgerðarnefnd 1938. Í raforkunefnd 1942, í landsbankanefnd 1942-1957, í raforkuráði 1954-1957, í orkunefnd 1955, í milliliðagróðanefnd 1956, í yfirmatsnefnd um skatt á stóreignir 1957. Í bankaráði Landsbankans frá 1966 til æviloka.
Alþm. V.-Húnv. 1937-1959, alþm. Norðurl. v. 1959-1969 (Framsfl.).
Atvinnumálaráðherra 1938-1939, fjármálaráðherra 1954.
Birti fjölmargar greinar í blöðum og tímaritum og ýmiss konar kveðskap.
Heimildir:
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr: 21806-25504. (1957-1969)
http://www.althingi.is/cv.php4?nfaerslunr=532 (sótt 27. júlí 2004)
Tengd aðföng

