Jón Haraldsson
17.10.1930 - 28.05.1989
Staða
Tannlæknir, Arkitekt
Staður
Staður: Bergstaðastræti 83, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Þingholt, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Nám: Stúdent frá M.R. 1950. Cand. odont. frá H.Í 1956. Lokapróf í húsagerðarlist frá Norges Tekniske Högskole í Þrándheimi 1960. Framhaldsnám og störf við skipulag borga og bæja á finnskum ríkisstyrk hjá Olli Kivinen arkitekt og prófessor við Háskólann í Helsinki 1960 - 61. Sótti námskeið Handiðnaskólans og Frístundamálaraskólans í Reykjavík 1950 - 52. Námsför í byggingalist um Ítalíu sumarið 1959 og síðar um önnur Miðjarðarhafslönd. Kynnti sér amerísk háskólabókasöfn á vegum íslenska ríkisins 1964. Kynnisferðir til heilsugæslustöðva í Svíþjóð og Noregi á vegum heilbrigðisráðuneytis og síðar um Noreg og Holland á vegum Reykjavíkurborgar. Kynnti sér heilsugæslustöðvar, sjúkrahús og dvalarheimili aldraðra í Ástralíu 1981.
Störf: Tannlækningaferðalag um Vesturland sumarið 1956. Aðstoðarmaður hjá T. Zhal tannlækni í Þrándheimi í Noregi sumarið 1957. Starfaði sem arkitekt frá 1960 til æviloka. Starfaði á teiknistofu Haldors Gunnlögssonar arkitekts og prófessors og Jörn Nielsen í Kaupmannahöfn 1961- 62. Starfrækti eigin teiknistofu í Reykjavík frá 1962 til æviloka. Helstu verkefni: Innréttingar húsnæðis Iceland Arts & Crafts í New York 1964, innréttingar Iceland Food Centre í Lundúnum 1965, kirkja í Stykkishólmi, skipulag íbúðabyggingar á vestasta hluta Seltjarnarness, Félagsheimili stúdenta í Reykjavík, heimavistarskóli og sumarbúðir í Krísuvík, félagsheimili á Sauðárkróki, SIEMENS - hús í Reykjavík, apótek, heilsugæslustöðvar og hjúkrunarstöðvar á Seyðisfirði, Dalvík, Patreksfirði, Höfn í Hornafirði, Hvammstanga, í Ólafsfirði og Reykjavík
Jón Haraldsson fæddist í Reykjavík 17. október 1930.
Foreldrar hans voru hjónin Júlíana Friðriksdóttir, hjúkrunarkona, dóttir Friðriks Jónssonar pósts Helgastöðum í Reykjadal í Suður-Þing eyjarsýslu og konu hans Guðrúnar Þorgrímsdóttur, og Haraldur Björnsson leikari frá Veðramóti í Skagafirði sonur Björns Jónssonar bónda þar og konu hans Þorbjargar Stefánsdóttur.
Var Jón yngstur þriggja barna þeirra hjóna, eftirlifandi systkini Jóns eru Stefán yfirlæknir og Dóra búsett í Noregi.
Að loknu barnaskólanámi settist Jón í MR og lauk þaðan stúdentsprófi árið 1950, hann innritaðist í tannlæknadeild Háskóla Íslands og lauk þaðan prófi árið 1956. Ekki fangaði sú starfsgrein hug hans, hann hélt til Þrándheims og hóf nám í húsagerðarlist í Norges Tekniske Högskole og tók þaðan lokapróf árið 1960. Næsta ár stundaði hann framhaldsnám í Helsinki og starfaði síðan um eins árs skeið í Kaupmannahöfn á teiknistofu. Eftir það rak hann eigin teiknistofu í Reykjavík til dauðadags.
Þann 5. janúar 1957 kvæntist Jón unnustu sinni, Áslaugu Stephensen, dóttur Eiríks Stephensen, forstjóra í Reykjavík, og konu hans Gyðu Thordarson.
Börn þeirra eru Gyða Júlíana, BSc., við nám í art therapy, búsett í London, gift Peter Bishop lögmanni þar,Haraldur, við nám í höggmyndalist í Düsseldorf,Stefán fetar í spor afa síns og lýkur prófi í leiklist frá Guildhall-lista skólanum í London í sumar og Edda, nemandi í MR. Jón var fagurkeri, hann var listfengur og listelskur, unnandi leikhúss og málverka og bókhneigður. Einkum átti tónlistin hug hans, hann var ekki að eins söngmaður góður heldur vel heima í tónlist og með víðan tónlistarsmekk. Hann söng í Smárakvartettinum í Reykjavík á meðan hann var og hét og var meðlimur í Stúdentakórnum á námsárum sínum og formaður hans um skeið. Hann varvel ritfær og drátthagur og stundaði nám í Handíðaskólanum og Frístundamálaraskólanum í Reykjavík.
Heimildir:
http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=32430;minningar=1 Skoðað 16.08.2011
Tengd aðföng



