Finnur Jónsson
28.9.1894 - 30.12.1951
Staða
Alþingismaður, Ráðherra, Forstjóri
Staður
Staður: Reynimelur 49, 107-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Melarnir, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Sveitarfélag 1950: Ísafjarðarkaupstaður
Núverandi sveitarfélag: Ísafjarðarbær, Ísafjarðarbær
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
F. á Harðbak á Sléttu.
For.: Jón Friðfinnsson (f. 8. nóv. 1857, d. 22. mars 1937) bóndi þar og k. h. Þuríður Sesselja Sigurðardóttir (f. 7. apríl 1857, d. 27. febr. 1945) húsmóðir. Faðir Birgis Finnssonar alþm.
K. 1. (14. okt. 1914) Auður Sigurgeirsdóttir (f. 2. apríl 1888, d. 20. júní 1935) húsmóðir. For.: Sigurgeir Indriðason og k. h. Þuríður Friðrika Magnúsdóttir.
K. 2. (13. júlí 1946) Magnea Magnúsdóttir (f. 21. nóv. 1914) húsmóðir. For.: Magnús Magnússon og k. h. Anna Sigríður Guðmundsdóttir.
Börn Finns og Auðar: Þuríður (1915), Birgir (1917), Ásta (1919), Ingibjörg (1921), Finnur (1923), Jón (1926).
Gagnfræðapróf Akureyri 1910.
Störf: Póstmaður á Akureyri 1910—1918, verslunarmaður þar 1919—1920. Póstmeistari á Ísafirði 1920—1932. Framkvæmdastjóri Samvinnufélags Ísfirðinga 1928— 1944. Skip. 21. okt. 1944 félagsmála- og dómsmálaráðherra, lausn 10. okt. 1946, en gegndi störfum til 4. febr. 1947. Í fjárhagsráði 1947—1949. Forstjóri Innkaupastofnunar ríkisins frá 1949 til æviloka.
Var í bæjarstjórn Ísafjarðar 1921—1942. Formaður verkalýðsfélagsins Baldurs á Ísafirði 1921—1932. Hann beitti sér fyrir stofnun verkalýðsfélaga á Vestfjörðum og stofnun Alþýðusambands Vestfjarða og var forseti þess í mörg ár. Í síldarútvegsnefnd 1935—1943, í landsbankanefnd 1936—1942, í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins 1938—1946, í útflutningsnefnd 1939 og í mþn. í sjávarútvegsmálum 1943. Átti sæti í stjórn Fiskimjöls hf. og Þórs hf. á Ísafirði og Útvegsmannafélags Ísfirðinga og í stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna frá stofnun þess 1939 til æviloka. Átti sæti í viðskiptanefnd við Noreg og Svíþjóð 1947 og Danmörku og Finnland 1948. Sat þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar í Genf 1947. Áheyrnarfulltrúi Íslands á stofnfundi Evrópuráðsins í Strasbourg 1948. Á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1946 og 1948.
Alþm. Ísaf. 1933—1951 (Alþfl.).
Félagsmála- og dómsmálaráðherra 1944—1947.
2. varaforseti Nd. 1937—1941, 2. varaforseti Sþ. 1942 og 1947—1949, 1. varaforseti Sþ. 1942 og 1943—1944, 1. varaforseti Nd. 1949—1950.
Ritstjóri: Skutull (1931—1935).
Heimildir:
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins Mms. 46579 - 51651. Alþingismannatal 1845 - 1975.
www.althingi.is.
Tengd aðföng
