Jón Högnason
13.2.1891 - 01.05.1989
Staða
Skipstjóri
Staður
Staður: Kleppsvegur Hrafnista, 104-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting: F. á Eystri-Sólheimum. Fór til
Reykjavíkur 1909.
Foreldrar: Högni Jónsson
bóndi f. 30.09.1853, d. 04.07.1900 og Ragnhildur Sigurðardóttir f. 23.11.1862,
d. 08.08.1907.
Maki I: Stefanía Vilborg
Grímsdóttir f. 20.08.1889, d. 16.02.1942
Börn: Högni, Vilborg, Ragnhildur,
Grímur.
Maki II: Karitas Grímsdóttir
f. 26.01.1897.
Skipsstjóri frá 1921. Fyrsti skipstjóri
á vélbátnum Skaftfellingi. Skipaskoðunarmaður hjá Skipaskoðun ríksins.
Fæddur að Eystri - Sólheimum, Mýrdal,
Vestur - Skaftafellssýslu og ólst þar upp til 18 ára aldurs. Faðirinn var
bóndi en móðirin húsfreyja. Farmannapróf frá Stýrimannaskólanum 1914. Jón
var tvígiftur og voru eiginkonur hans báðar húsmæður.
Jón Högnason var háseti á fiskiskútunum
Guðrúnu Zoëga frá Reykjavík, Margréti, Guðrúnu frá Gufunesi og Skarphéðni
á árunum 1909-1911. Hann var togaraskipstjóri í fjölda ára, en vann síðast
hjá skipaskoðun ríkisins.
Jón var lengi til heimilis að Miðtúni
21, Reykjavík.
Heimildir: Vestur-Skaftfellingar II, 336-337.
ÞÞ 5445.
Sjá ennfremur Guðmund Jakobsson, Skipstjóra
og stýrimannatal, Reykjavík 1979-1980.
Tengd aðföng




