Ása Solveig Jónsdóttir

7.7.1876 - 1945
Staða
Vesturfari
Staður
Staður: Hornstaðir, 371-Búðardal, Dalabyggð, Laxárdalur, Ísland Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð, Ísland Sveitarfélag 1950: Laxárdalshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Ása Sólveig Jónsdóttir. Fædd 7. júlí 1876. Dáin 1945. Fór til Vesturheims 1888 með foreldrum sínum. Settist að í Þingvallabyggð í Saskatchewan. Eftir lát manns síns flutti hún til Wynyard. For. Jón Ólafsson og Kristbjörg Bergþórsdóttir (1932-1894) á Hornstöðum í Laxárdal. Maður Ásu (22.4.1894) var Arngrímur Kristjánsson (27.11.1854-30.8.1910) frá Steðja á Þelamörk. Synir þeirra voru Kristbergur í Vancouver, Jón Kristinn í Chicago og Bergþór Ólafur bóndi í Saskatchewan. Heimildir: Jón Guðnason. 1966. Dalamenn III. Bls. 270. Júníus H. Kristinsson. 1983. Vesturfaraskrá 1870-1914. Bls. 179. Ólafur S. Thorgeirsson. 1922. Almanak. Bls. 59.
Tengd aðföng