Valgerður Jónsdóttir
20.9.1827 - 9.2.1898
Staða
Húsfreyja
Staður
Staður: Staðarfell, 371-Búðardal, Dalabyggð
Sveitarfélag 1950: Fellsstrandarhreppur
Sveitarfélag 1950: Skógarstrandarhreppur
Staður: Gvendareyjar, 371-Búðardal, Dalabyggð
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Valgerður Jónsdóttir. Fædd 20. september 1827 í Bjarnarhafnarsókn. Dáin 9. febrúar 1898. Er hjá föður sínum í Stykkishólmi 1835 og tökubarn í Hallsteinsnesi 1840 ásamt föður sínum. Vinnukona í Hallsteinsnesi 1845. Vinnukona í Ögri 1850. Ógift húskona í Benedictsenshúsi í Stykkishólmi 1855. Húsfreyja í Gvendareyjum við Skógarströnd 1864-1873 og á Staðarfelli á Fellsströnd 1873-1898. For. Jón Arnfinnsson (1794-1873) stýrimaður í Stykkishólmi. Vinnumaður og próventukarl á Hallsteinsnesi í Gufudalssveit og Guðrún Ólafsdóttir (1791-1831) í Akureyjum í Helgafellssveit. Fyrri maður Valgerðar var Vigfús Bjarnason Thorarensen (1821-1861) gullsmiður í Gvendareyjum. Seinni maður Valgerðar var Hallgrímur Jónsson (1834-1903) bóndi, hreppstjóri og Dannebrogsmaður á Staðarfelli. Sonur þeirra var Vigfús Thorarensen (1864-1925), Ólína Andrea (1864-1866) og Óli Andrés Jóhann (1866-1870)
Heimildir: Jón Guðnason. 1961. Dalamenn II. Bls. 131.
Tengd aðföng

