Steingrímur Jónsson
7.10.1829 - 10.6.1923
Staða
Bóndi, Smiður
Staður
Staður: Foss 1, 880-Kirkjubæjarklaustri, Skaftárhreppur, Síða, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Skaftárhreppur, Skaftárhreppur
Sveitarfélag 1950: Hörgslandshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Sjá safnnr.1994:64. F. í Heiðarseli.
Smiður á málma og tré. Lengi til heimilis í Heiðarseli, húsmaður og smiður
þar og víðar. Bóndi á Fossi 1876-1897. Eiginkona: Þórunn Eiríksdóttir frá
Hlíð f. 1840, d. 1911.
Silfur í Þjóðminjasafni:
Steingrímur Jónsson var í Heiðarseli
á Síðu til 1850, fór þá austur í Múlasýslur og var þar 1850-1852 þar sem
hann lærði silfursmíði. Var sagt að hann hefði verið við nám í þrjár
vikur. Var silfursmiður hjá foreldrum sínum í Heiðarseli
1852-1859, húsmaður þar 1859-1862
og bóndi 1862-1876. Bóndi á Fossi á Síðu 1876-1897. Smíðaði auk skeiða
samfelluhnappa og stokkabelti en hjó einnig legsteina.
(Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 6.12.2010)
Heimildir: Vestur Skaftfellingar IV, 56, 270.
Þór Magnússon. Silfur
í Þjóðminjasafni. Reykjavík, 1996: 61.
Tengd aðföng








