Ari Guðmundsson
18.11.1895 - 21.5.1959
Staða
Vegaverkstjóri, Hreppstjóri, Bóndi
Staður
Staður: Skálpastaðir 1, 311-Borgarnesi, Borgarbyggð, Lundarreykjadalur, Ísland
Staður: Þórunnargata 1, 310-Borgarnesi, Borgarbyggð, Borgarnes, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Borgarbyggð, Borgarbyggð
Sveitarfélag 1950: Lundarreykjadalshreppur
Staður: Vatnshamrar, 311-Borgarnesi, Borgarbyggð, Andakíll, Ísland
Sveitarfélag 1950: Andakílshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Vegaverkstjóri í Borgarnesi, fæddist að Vatnshömrum Andakílshreppi 18.11. 1895, d.21.05.1959. Hann kenndi sig gjarnan við Skálpastaði í Lundareykjadal, enda þar uppalinn, var bóndi og hreppstjóri þar um tíma.
Foreldrar Ara voru Guðmundur Auðunsson f..03.07.1865 d.26.10.1935, bóndi Skálpastöðum og Guðbjörg Aradóttir f.22.07.1867 d.30.04.1921, húsfreyja og ljósmóðir.
Systkyni Ara voru; Guðrún Lovísa, f.28.08.1894, d.05.10.1947, matráðskona Reykjavík, Kristín, f. 19. nóv 1899, d.24.03.1978, húsfreyja, g. Bjarna Sveinssyni í Eskiholti, Vilborg, f. 19.nóv. 1899, d. 07.12.1899, Þorsteinn, f. 31. maí 1901, d.05.01.1996, bóndi á Skálpastöðum, kv. Þórunni Vigfúsdóttur.
Maki: Ólöf Sigvaldadóttir ffædd í Stykkishólmi 11. september 1906. Hún lést á St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði hinn 19. 2000. Foreldrar hennar voru hjónin Guðlaug Halldóra Jóhannsdóttir, f. 15.9. 1877, d. 31.1. 1946, húsmóðir, Stykkishólmi og Sigvaldi Valentínusson, f. 22.6. 1885, d. 28.1. 1924, skipstjóri og hafnsögumaður, Stykkishólmi.
Börn:
1) Óskírður drengur, f. 28.1. 1935, d. 28.1. 1935.
2) Guðbjörg, f. 3.8. 1936, rannsóknarmaður við HÍ. Maki Sigurður Eyjólfsson hafnarvörður. Börn þeirra eru: Ari, f. 1962, kvæntur Hrönn Magnúsdóttur og eiga þau tvö börn. Þórdís, f. 1965, gift Hilmari Sigurðssyni og eiga þau þrjú börn. Jón, f. 1974 í sambúð með Öldu Hrönn Jóhannsdóttur.
3) Sigvaldi, f. 18.12. 1937, framkvæmdastjóri í Borgarnesi. Maki Halldís Anna Gunnarsdóttir, sérkennari. Þeirra börn eru: Ari, f.1966 í sambúð með Snæfríði Þorsteins. Óskar, f. 1971 í sambúð með Jórunni Eddu Hafsteinsdóttur. Ólöf Dögg, f. 1973.
4) Guðmundur Auðunn, f. 2.2. 1940, skrifstofustjóri í Borgarnesi. Maki Lilja Ósk Ólafsdóttir tækniteiknari. Þeirra börn eru: Ragnheiður, f. 1963, gift Ámunda Sigurðssyni og eiga þau þrjú börn. Ólöf, f. 1965 í sambúð með Alexander Hrafnkelssyni og eiga þau tvö börn. Ari, f. 1973 í sambúð með Helgu Jóhannesdóttur og eiga þau eitt barn.
5) Unnsteinn, f. 21.5. 1941, trésmíðameistari í Borgarnesi. Börn hans eru Héðinn, f. 1970. Guðrún, f. 1973 í sambúð með Sturlu Sigmundssyni. Sverrir, f. 1980. Hörður, f.1986.
6) Hólmsteinn, f. 21.5. 1941, rafvirkjameistari í Reykjavík. Sonur hans er Steinar, f. 1960 í sambúð með Díönu Margréti Hrafnsdóttur og eiga þau tvö börn.
7) Hreinn Ómar, f. 30.4. 1944, flugstjóri í Reykjavík. Maki Anna Sigríður Kristófersdóttir, bankastarfsmaður. Þeirra börn eru: Kristófer, f. 1969 í sambúð með Erlu Helgadóttur. Snorri, f. 1971 í sambúð með Lilju Víglundsdóttur. Sturla, f. 1972 í sambúð með Helgu Þorvaldsdóttur.
8) Jón Ármann, f. 8.7. 1946, verktaki í Reykjavík. Hans börn eru: Einar, f. 1970, kvæntur Halldóru Jónsdóttur og eiga þau tvö börn. Sigríður Unnur, f. 1976, í sambúð með Ágústi Jóhannssyni.
Hann stundaði nám við Hjarðarholtsskóla 1915-16 og varð búfræðingur frá Hvanneyri.
Árið 1926 hvatti hans gamli nágranni Tryggvi Þórhallsson ráðherra að taka að sér vegaverksstjórn í Borgafirði að sér.
Hóf hann síðan störf 11.maí 1926, og var hann vegaverkstjóri í Borgarfirði til dánardags 21.maí 1959. Starfaði hann víða um héraðið og var við lagningu vegar hjá Ferjukoti að Hvítárbrú sem byggð og vígð var árið 1928. Þar var fyrsta mötuneyti vegavinnumanna í Borgarfirði stofnað 1927.
Vann 1928 við að ryðja Kaldadal svo þar næðist bifreiðaleið milli vestur og suðurlands fyrir þjóðhátíðina.
Á árunum 1929 til 1932 er hann við frumlagning vegar yfir Bröttubrekku, 1933 og 1934 við lagningu vegar yfir Holtavörðuheiði.
Árið 1935 við vinnu á Kerlingarskarði. Árið 1940 byrjar frumvinna við að leggja veg yfir Uxahryggi.
1.maí 1943 tekur hann við öllu viðhaldi og nýbyggingum vega í öllu Borgarfjarðarhérði.
Umsjón með vegheflun á svæði frá Botnsá í Hvalfirði, um Snæfellsnes og um Dali allt að Arngerðareyri við Djúp og að Hólmavík og Hrútafjarðará í norðri, til ársins 1956 er hefill kemur í Búðardal, og 1957 er hefill kemur í Stykkishólm.
Hann sá einnig um flutninga á þungavinnuvélum þ.e. jarðýtum, skurðgröfum og vélskóflum, á sama svæði og heflunin.
Hann starfaði mjög að félagsmálum og var hann einn af stofnendum Hestamannafélagsins Faxa, Landssambands hestamanna, Verkstjórasambands Íslands, Verkstjórafélags Borgarness, Björgunarsveitar Borgarness, Bridgefélags Borgarness, Rótaryklúbbs Borgarness, Hrossaræktardeildar Búnaðarsambands Borgarfjarðar og var stjórnarmaður í þeim öllum og formaður í mörgum þeirra til fjölda ára, meðal annars formaður Faxa í 22 ár. Var í stjórn Búnaðarsambands Borgarfjarðar, og fleiri fyrirtækja.
Var í yfirskattanefnd, sýslunefnd, hafnarnefnd og endurskoðandi reikninga Ræktunarsambands Borgarfjarðar auk annarra trúnaðarstarfa.
Eftir hann liggur fjöldi ritverka sem birtist víða í bókum, blöðum og tímaritum.
Hann lést af slysförum 21. maí 1959.
Heimildir: Ljósmyndaskrá ByggDal 378
http://www.mbl.is/greinasafn/grein/567875/
https://www.gardur.is/einstakl.php?nafn_id=218796
Tengd aðföng









