Jakob Möller

12.7.1880 - 5.11.1955
Staða
Sendiherra, Bankastjóri, Ráðherra, Góðtemplari
Staður
Staður: Hólatorg 2, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Annað nafn
Jakob Ragnar Valdimar Möller
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Stúdentspróf Lsk. 1902. Stundaði verkfræðinám í Kaupmannahöfn 1902-1905 og læknisfræðinám í Reykjavík 1906-1909, en lauk ekki námi. Ritari í Landsbankanum í Reykjavík 1909-1915. Ritstjóri í Reykjavík 1915-1924 og aftur síðar nokkurn tíma. Fékkst þá við ýmis störf í Reykjavík um skeið. Stjórnarformaður og síðar framkvæmdastjóri Sjúkrasamlags Reykjavíkur frá stofnun þess 1937-1945. Skip. 17. apríl 1939 fjármálaráðherra, lausn 7. nóv. 1941, en gegndi störfum til 18. nóv. Skip. 18. nóv. 1941 fjármálaráðherra að nýju, fór einnig með iðnaðarmál, jafnframt falið 17. jan. 1942 að fara með bæjar- og sveitarstjórnarmál, lausn 16. maí 1942. Skip. 16. maí 1942 fjármála-, dómsmála- og félagsmálaráðherra, lausn 14. nóv. 1942, en gegndi störfum til 16. des. Skip. 1945 sendiherra í Kaupmannahöfn, 1947 jafnframt sendiherra í Finnlandi. Lét af þeim störfum 1951. Í fulltrúaráði Íslandsbanka 1922-1924. Skip. 1924 eftirlitsmaður með bönkum og sparisjóðum og gegndi þeim starfa til 1934, en var síðan eftirlitsmaður með opinberum sjóðum til 1939. Í stjórn Þjóðleikhússjóðs 1924. Skip. 1927 í matsnefnd Landsbankans. Bæjarfulltrúi í Reykjavík 1930-1945. Kosinn 1933 í Þingvallanefnd. Í stjórn byggingarsjóðs verkamannabústaða 1935-1945. Í eftirlitsráði með opinberum rekstri 1935-1936. Kosinn 1935 í stjórn markaðs- og verðjöfnunarsjóðs. Í landsbankanefnd 1936-1945, í mþn. um tryggingamál 1942, í mþn. um launamál 1943 og mþn. um undirbúning verklegra framkvæmda. Í bankaráði Landsbankans 1944-1945. Í samninganefnd um viðskipti við Dani 1948-1950. Alþm. Reykv. 1919-1927 (Ufl. (Sjálfstfl. eldri), Borgfl. eldri, Frjálsfl.) og 1931-1945 (Sjálfstfl.). Fjármálaráðherra 1939-1942, fjármála- og dómsmálaráðherra 1942. 1. varaforseti Sþ. 1937-1939. Ritstjóri: Vísir (1915-1924).   Hann var embættismaður í Stórstúku Íslands. Mms. 23389. Heimildir: Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr.17843-21805 http://www.althingi.is/cv.php4?nfaerslunr=276 (sótt 27. júlí 2004) Aðfangabók Þjóðminjasafnsafns Íslands. Nr. 21806 - 25504.
Tengd aðföng