Halldór Laxness

23.4.1902 - 08.02.1998
Staða
Rithöfundur, Skáld
Staður
Staður: Gljúfrasteinn, 270-Mosfellsbæ, Mosfellsbær, Mosfellsdalur, Ísland Núverandi sveitarfélag: Mosfellsbær, Mosfellsbær Staður: Laxnes 1, 270-Mosfellsbæ, Mosfellsbær, Mosfellsdalur, Ísland Sveitarfélag 1950: Mosfellshreppur
Annað nafn
Halldór Kiljan Laxness
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Foreldrar:  Sigríður Halldórsdóttir, f. 27.10.1872 á Kirkjuferju í Ölfusi, d. 17.09.1951, og Guðjón Helgi Helgason, vegaverkstjóri og bóndi í Laxnesi í Mosfellssveit, f. 23.10.1870 á Lambastöðum i Álftaneshreppi, Mýrasýslu, d. 19.06.1919.  Systkin:  Sigríður húsmóðir, Helga píanókennari. Barnsmóðir:  Málfríður Jónsdóttir, f. 29.08.1896.  Barn:  María, húsmóðir, f. 10.04.1923. Maki I:  Ingibjörg Einarsdóttir leikkona, f. 03.05.1908.  Barn:  Einar, cand. mag., f. 09.08.1931. Maki II:  Auður Sveinsdóttir, f. 30.07.1918.  Börn:  Sigríður, f. 26.05.1951, og Guðný kvikmyndagerðarmaður, f. 23.01.1954. Foreldrar maka II:  Halldóra Kristín Jónsdóttir, f. 27.08.1892, d. 25.02.1971, og Sveinn Guðmundsson járnsmiður, f. 14.11.1885, d. 16.12. 1956. Menntun:  Gagnfræðapróf frá M.R. 1918.  Hætti námi í 4. bekk, 1919.  Nám hjá Benediktsmunkum í Lúxemborg 1922-1923 og í Kristmunkaskóla í London 1923-1924.  Hefur dvalist langdvölum erlendis og ferðast víða en átt fast heimili að Gljúfrasteini í Mosfellssveit frá 1945. Félagsstörf:  Í stjórn Hins íslenska þjóðvinafélags 1944-1967.  Í stjórn Bandalags íslenskra listamanna um skeið um 1945.  Forseti Menningartengsla Íslands og Ráðstjórnarríkjanna 1950-1968.  Í þjóðleikhúsráði 1948-1968.  Í stjórn Máls og menningar frá 1950.  Einn þriggja varaforseta Samfélags evrópskra rithöfunda (Communità Europea degli Scrittori) 1960-1968. Viðurkenningar:  Bókmenntapeningur Heimsfriðarráðsins í Vín 1952.  Bókmenntaverðlaun Nóbels 1955.  Nexö-verðlaunin 1955.  Stórkross Hinnar íslensku fálkaorðu 1957.  Stórkross sænsku Norðstjörnuorðunnar 1957.  Stórriddarakross frönsku orðunnar Ordre des Arts et des Lettres 1963.  Sonning-verðlaunin 1969.  Heiðursborgari Ghent í Belgíu 1958 og Mosfellshrepps 1972.  Heiðursdoktor við Åboháskóla í Finnlandi 1968, við heimspekideild Háskóla Íslands 1972, við Eberhaard-Karls-Universität í Tübingen 1982 og við Háskólann í Edinborg 1977. Halldór Kiljan Laxness ólst upp í Laxnesi. Svör við skrám þjóðháttadeildar miðast við Reykjavík, Kjósarsýsla, Mosfellssveit, og víða um heim. Heimildir: Samtíðarmenn, Vilhelm G. Kristinsson ritstýrði, bls. 281-282.  Útg.:  Vaka-Helgafell, Reykjavík, 1993. Ísl. samtíðarmenn, I, 275
Tengd aðföng