Lárus Helgason

8.8.1873 - 1.11.1941
Staða
Alþingismaður, Bóndi
Staður
Staður: Kirkjubæjarklaustur, 880-Kirkjubæjarklaustri, Skaftárhreppur, Síða, Ísland Núverandi sveitarfélag: Skaftárhreppur, Skaftárhreppur Sveitarfélag 1950: Kirkjubæjarhreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Bóndi á Múlakoti í Síðu 1901-1905, síðar á Kirkjubæjarklaustri frá 1905 til æviloka. Alþingismaður og bóndi á Kirkjubæjarklaustri, Prestbakkasókn, Skaft. 1910. Fæddur á Fossi á Síðu 8. ágúst 1873, dáinn 1. nóvember 1941. Foreldrar: Helgi Bergsson (fæddur 7. júlí 1841, dáinn 21. febrúar 1900) bóndi þar og kona hans Halla Lárusdóttir (fædd 8. september 1843, dáin 1. mars 1927) húsmóðir. Maki (29. júní 1900): Elín Sigurðardóttir (fædd 1. ágúst 1871, dáin 4. júní 1949) húsmóðir. Foreldrar: Sigurður Sigurðsson og kona hans Gyðríður Ólafsdóttir. Synir: Helgi (1901), Siggeir (1903), Júlíus Helgi (1905), Valdimar (1908), Bergur (1910). Kennari á Síðu 1891–1898. Bóndi í Múlakoti á Síðu 1900–1906 og á Kirkjubæjarklaustri frá 1906 til æviloka. Símstöðvarstjóri og póstafgreiðslumaður frá 1929. Oddviti Hörgslandshrepps til 1906. Í hreppsnefnd Kirkjubæjarhrepps 1907–1941, oddviti frá 1913. Formaður stjórnar Kaupfélags Skaftfellinga 1914–1941. Formaður stjórnar Skaftfellings hf. 1917–1941. Í landsbankanefnd 1928–1938. Alþingismaður Vestur-Skaftfellinga 1922–1923 og 1927–1933 (Framsóknarflokkur). Heimildir: Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr: 25505-28521. (1969-1974) https://www.islendingabok.is/search?find=l%C3%A1rus+helgason+1873 https://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=402 Vestur Skaftfellingar I,261; III,48. 
Tengd aðföng