Pétur Pétursson
21.8.1921 - 27.10.1996
Staða
Alþingismaður
Staður
Staður: Kleppsvegur 62, 104-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
For.: Pétur Pétursson (f. 17. júní 1893, d. 9. maí 1921) vinnumaður á Álftá og Ólafía Eyjólfsdóttir (f. 1. sept. 1898, d. 28. okt. 1988) vinnukona.
K. 1. (15. júní 1947) Ragnheiður Magnúsdóttir (f. 28. des. 1924) húsmóðir. Þau skildu. For.: Magnús Sigmundsson og k. h. Anna Jóhannesdóttir.
K. 2. (21. maí 1954) Hrefna Guðmundsdóttir (f. 27. maí 1925) húsmóðir. For.: Guðmundur Jónsson og k. h. Elísabet Einarsdóttir.
Synir Péturs og Ragnheiðar: Magnús (1947), Pétur Óli (1949).
Börn Péturs og Hrefnu: Guðmundur Ágúst (1953), Ingibjörg (1954), Pétur (1956), Guðrún (1961).
Héraðsskólapróf Laugarvatni 1941. Nám í Samvinnuskólanum 1941—1942. Nám við New York University School of Commerce 1945—1946. Kynnti sér starfsemi innkaupastofnana í Bandaríkjunum sumarið 1960 í boði bandaríska utanríkisráðuneytisins.
Skrifstofustjóri Landssmiðjunnar í Reykjavík 1947—1956, átti jafnframt sæti í viðskiptanefnd um skeið. Settur verðgæslustjóri 1950—1951. Forstjóri Innflutningsskrifstofunnar 1956—1959. Forstjóri Innkaupastofnunar ríkisins 1959— 1966. Framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar 1966—1967. Forstjóri Álafoss hf. 1968— 1973. Starfsmannastjóri við Sigölduvirkjun 1974—1976. Forstjóri Norðurstjörnunnar hf., Hafnarfirði 1976—1981. Fulltrúi í Framkvæmdastofnun ríkisins frá 1981.
Kosinn 1959 í öryrkjamálanefnd. Í stjórn landshafnar í Rifi 1957—1990, formaður 1957—1972 og 1980—1984. Sat þing Alþjóðaþingmannasambandsins 1957. Skip. 1965 í samninganefnd um kísilgúrframleiðslu. Skip. 1965 í nefnd til að athuga rekstur Skipaútgerðar ríkisins. Í stjórn Kísilgúrverksmiðjunnar, síðar Kísiliðjunnar 1966—1983. Skip. 1971 í endurskoðunarnefnd laga um Iðnaðarmálastofnun Íslands og í gosefnaiðjunefnd. Í Rannsóknaráði ríkisins 1971— 1974 og í stjórn Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins 1971—1975. Sat fundi Þingmannasamtaka Norður-Atlantshafsríkjanna 1971 og 1972. Aðalræðismaður fyrir Lúxemborg síðan 1972. Kosinn 1973 í byggðanefnd.
Landsk. alþm. (Snæf.) 1956— 1959 og (Norðurl. v.) 1971—1974 (Alþfl.).
Landsk. vþm. (Vesturl.) mars—apríl 1960, apríl—maí 1964 og apríl—maí 1966, (Norðurl. v.) nóv. 1976, vþm. Vesturl. okt. 1960, nóv. 1961, nóv. 1962, nóv. 1964, okt.—nóv. 1966, mars og nóv. 1968 og nóv. 1970.
Tengd aðföng
