Jóhannes Sigurðsson

3.8.1908 - 17.01.1984
Staða
Bóndi
Staður
Staður: Hnúkur, 371-Búðardal, Dalabyggð, Klofningur, Ísland Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð, Ísland Sveitarfélag 1950: Klofningshreppur Staður: Tröð, Súðavíkurhreppur, Álftafjörður, Ísland Sveitarfélag 1950: Súðavíkurhreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Jóhannes Sigurðsson. Fæddur 3. ágúst 1908 í Tröð í Álftafirði. Dáinn 17. janúar 1984. Flutti tveggja ára að Kletti í Gufudalssveit, þaðan í Flatey til 10 ára aldurs. Í Reykjavík og nágrenni næstu 10 árin. Flutti um tvítugt aftur vestur og var meðal annars lengi í Rúfeyjum hjá Valdimar bróður sínum. Bóndi á Hnúki frá 1931-1984. Hreppstjóri í Klofningshreppi 1947-1984. Í hreppsnefnd frá 1938. Stöðvarstjóri Pósts og síma. Útibússtjóri hjá Verslun Sigurðar Pálmasonar í Hnúksnesi. Harmonikkuspilari. For. Sigurður Óli Sigurðsson og Helga Þórðardóttir í Súðavík og víðar. Kona Jóhannesar var Sesselja Kristín Teitsdóttir ljósmóðir frá Hlíð í Hörðudal. Barnlaus, en fósturdóttir þeirra var Elsa Kjartansdóttir. Svör hans við spurningum þþ miðast við Patreksfjörð og Breiðafjörð. Heimildir: Jón Guðnason. 1961. Dalamenn II. Bls. 258. Ástvaldur Magnússon. Morgunblaðið 13.5.1984. Bls. 41.    
Tengd aðföng