Margrét Tómasdóttir Zoëga Klog
12.5.1853 - 14.1.1937
Staða
Hótelstýra, Veitingamaður, Hótelstjóri
Staður
Staður: Laufásvegur 7, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Þingholt, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Staður: Ásvallagata 5, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland
Staður: Ráðagerði, 170-Seltjarnarnes, Seltjarnarnesbær, Seltjarnarnes, Ísland
Sveitarfélag 1950: Seltjarnarneshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Húsfreyja í Reykjavík 1910. Ekkja á Ásvallagötu 5, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík, seinni kona Einars Zoëga veitingamanns í Reykjavík.
Bera saman
Margrét Tómasdóttir Zoëga var fædd 13. maí 1853 í Ráðagerði á Seltjarnarnesi. Foreldrar hennar voru Tómas Klog Steingrímsson, fæddur 17. febrúar 1816, og Valgerður Ólafsdóttir kona hans, fædd 15. ágúst 1820 í Bygggarði á Seltjarnarnesi.
Tómas faðir Margrétar fórst í sjóróðri 19. maí 1854, tæpri viku áður en hún varð ársgömul.
Margrét var seinni kona Einars Zoëga veitingamanns. Margrét og Einar stunduðu veitingarekstur á Vesturgötu 17 til ársins 1906, síðan í Austurstræti 12, en þau hjón létu reisa Hótel Reykjavík, sem Rögnvaldur Ólafsson teiknaði. Einar Zoëga lést 9. ágúst 1909. Margrét hélt rekstrinum áfram þar til Hótel Reykjavík varð eldi að bráð aðfaranótt 25. apríl 1915, eins og fleiri hús í miðbænum.
Í glæsivillunni á Þrúðvangi bjuggu með Margréti Zoëga Einar Benediktsson skáld og eiginkona hans, Valgerður, dóttir Margrétar. Einar og Valgerður fluttu til Íslands frá Kaupmannahöfn í desember 1921. Sagan segir að hjónin hafi ekki fengið búslóð sína senda frá Kaupmannahöfn fyrr en um vorið. Heimili Einars og Valgerðar í Þrúðvangi var glæsilegt, mikill gestagangur og veislur haldnar.
Heimildir:
Aðfangabók Þjóðminjasafns Íslands. Nr. 21806 - 25504.
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/740358/
Tengd aðföng








