Ástríður Oddbergsdóttir

21.1.1915 - 22.12.2010
Staða
Húsfreyja, Fiskvinnslukona
Staður
Staður: Ás, 781-Höfn í Hornafirði, Sveitarfélagið Hornafjörður, Nesjasveit, Ísland Núverandi sveitarfélag: Sveitarfélagið Hornafjörður, Sveitarfélagið Hornafjörður Sveitarfélag 1950: Nesjahreppur Staður: Vesturgata 18, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland Sveitarfélag 1950: Reykjavík Staður: Skjólgarður, Sveitarfélagið Hornafjörður, Höfn í Hornafirði , Ísland Sveitarfélag 1950: Hafnarhreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Ástríður Oddbergsdóttir. Fædd 21. janúar 1915 á Vesturgötu 18 í Reykjavík. Dáin 22. Desember 2010 á Hjúkrunarheimili HSSA á Hornafirði. Ólst upp frá þriggja ári aldri hjá Önnu Elínu systir sinni og sr. Eiríki Helgasyni manni hennar á Sandfelli í Öræfum og síðar Bjarnanesi í Nesjum. Húsmæðraskólinn á Staðarfelli 1933-1934. Húsfreyja í Ási í Nesjum 1937-1962. Frá 1962 í Brautarholt á Höfn, þar vann Ásta við fiskvinnslu. For. Oddbergur Oddsson (1858-1916) umsjónarmaður Mýrarhúsaskóla og Halldóra Jónsdóttir (1883-1918) vinnukona. Systkini Ástu samfeðra voru Guðmundur, Anna Elín og Þorbjörg Guðdís. Systir  Ástu sammæðra var Hólmfríður Anna. Uppeldissystkini Ástu voru Ingibjörg, Helgi, Oddbergur, Kristín og Ingibjörg. Maður Ástu var (1937) Marteinn Lúther Einarsson (1910-1986). Börn þeirra eru Ásdís (1938), Hrollaugur (1942), Eiríkur (1943-2007) og Anna Elín (1953).  Heimildir: Minningargreinar. Mbl. 29.12.2010, bls. 26 og 19.1.2011, bls. 30 Skrá yfir filmu og plötusöfn Helga Arasonar í Þjóðminjasafni Íslands. Sjá nr. 477 HA.
Tengd aðföng