Ingibjörg Pálmadóttir

18.2.1949
Staða
Alþingismaður, Hjúkrunarfræðingur, Ráðherra
Staður
Staður: Vesturgata 32a, 300-Akranes, Akraneskaupstaður, Akranes, Ísland Núverandi sveitarfélag: Akraneskaupstaður, Akraneskaupstaður Sveitarfélag 1950: Akranes
Ítarupplýsingar
Vefbirting: F. á Hvolsvelli 18. febr. 1949. For.: Pálmi Eyjólfsson (f. 22. júlí 1920, d. 12. okt. 2005) sýslufulltrúi og k. h. Margrét Ísleifsdóttir (f. 8. okt. 1924) tryggingafulltrúi. Systir Ísólfs Gylfa Pálmasonar alþm. M. (7. maí 1972) Haraldur Sturlaugsson (f. 24. júlí 1949) útgerðarmaður. For.: Sturlaugur H. Böðvarsson og k. h. Rannveig Böðvarsson húsmóðir, dóttir Pálma Hannessonar alþm., en kjördóttir Edvalds Torps. Synir: Sturlaugur (1973), Pálmi (1974), Ísólfur (1979), Haraldur (1989). Hjúkrunarfræðipróf frá Hjúkrunarskóla Íslands 1970. Hjúkrunarfræðingur við Sjúkrahús Akraness 1970-1988. Skip. 23. apríl 1995 heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lausn 28. maí 1999. Skip. á ný sama dag heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Leyst frá ráðherrastörfum um stundarsakir vegna veikinda frá 23. jan. til 6. febr. og frá 9. til 26. febr. 2001. Leyst frá ráðherrastörfum 14. apríl 2001, afsalaði sé þingmennsku sama dag. Í bæjarstjórn Akraness 1982-1994, forseti bæjarstjórnar 1986-1988 og 1990-1991. Í bæjarráði Akraness 1984-1991. Í stjórn Skallagríms frá 1987. Í stjórnarnefnd um málefni fatlaðra frá 1987. Í stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga 1986-1990. Í stjórn framkvæmdanefndar atvinnumála á Akranesi frá 1991. Í Vestnorræna þingmannaráðinu 1994-1995. Alþm. Vesturl. 1991-2001 (Framsfl.). Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 1995-2001. Heilbrigðis- og trygginganefnd 1991-1995, félagsmálanefnd 1991-1994, sjávarútvegsnefnd 1994-1995. Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 1994-1995.   Heimildir: althingi.is
Tengd aðföng