Magnús Th. S. Blöndal

10.9.1862 - 3.3.1932
Staða
Útgerðarmaður, Alþingismaður, Kaupmaður, Forsmiður
Staður
Staður: Suðurgata 18, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Annað nafn
Magnús Th. S. Blöndahl
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Magnús lærði trésmíðar af Jóni Christni Stephánssyni frá Akureyri. Magnús fór til framhaldsnáms í Danmörku og settist eftir það að í Hafnarfirði 1884-1900. Þá fluttist hann til Reykjavíkur og rak þar togaraútgerð, verslun og verksmiðjuiðnað. Hann var einnig alþingismaður og bæjarfulltrúi og einn af stofnendum Völundar. Hann er forsmiður að Skálholtsstíg 7og Landshöfðingjahúsinu Næpunni, timburhús reist 1902. Það er metnaðarfyllsta verk hans. Eftir hann eru einnig Kirkjustræti 8B og Björnsbakarí við Vallarstræti. Í Hafnarfirði reisti hann Vesturgötu 2, hús Ingólfs Flygenrings en það er horfið. [Úr Íslenskri byggingararfleifð I, 155, 181, 319, 330, 355 og Akureyri. Fjaran og innbærinn, 42.] Fæddur að Tjörn á Vatnsnesi. Fullt nafn: Magnús Þorlákur Sigfússon. Tók ættarnafnið Blöndal 1917. Foreldrar: Sigfús Jónsson, prestur að Undirfelli í Vatnsdal (f. 12.10.1814, d. 09.03.1876) og Sigríður Oddný Björnsdóttir (f. 15.10.1824, d. 23.01.1889). Maki (21.11.1884): Guðrún Gísladóttir, f. 23.08.1859, d. 14.11.1953. (Foreldrar hennar: Gísli Þormóðsson bóndi á Lambastöðum í Flóa og Elín Ingimundardóttir). Börn: Sigfús (1885), Sigríður (1888), Sighvatur Ingimundur (1889), Þormóður Stefán (1891), Kristjana (1895), Kristjana (1896). Nam trésmíðar á Akureyri og gullkomnaðist í því námi í Kaupmannahöfn 1880-1882. Kom þá heim og lagði stund á smíðar, sjómennsku o.fl. Stundaði jöfnum höndum smíðar, þilskipaútgerð og verslun í Hafnarfirði 1884-1900. Fluttist þá til Reykjavíkur og stundaði húsasmíðar og útgerð. Framkvæmdastjóri timburverslunarinnar Völundar 1903-1911. Rak síðan togaraútgerð, verksmiðjuiðnað og verslun. Síðari árin aðaleigiandi og stjórnandi útgerðarfélagsins Sleipnis. Í bankaráði Íslandsbanka 1909-1913. Í mþn. um fjármál 1911. Heimildir: Hörður Ágústsson, Íslensk byggingararfleifð I, 1998. Skrá yfir friðuð hús. Húsfriðunarnefnd ríkisins. Alþingismannatal 1845-1975, bls. 289-290. Skrifstofa Alþingis gaf út, Reykjavík, 1978.
Tengd aðföng