Hermann Guðmundsson
15.6.1914 - 27.02.1992
Staða
Framkvæmdastjóri, Alþingismaður
Staður
Staður: Langeyrarvegur 5, 220-Hafnarfirði, Hafnarfjarðarkaupstaður
Núverandi sveitarfélag: Hafnarfjarðarkaupstaður, Hafnarfjarðarkaupstaður
Sveitarfélag 1950: Hafnarfjörður
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Þessar upplýsingar um Hermann komu fram í Morgunblaðinu 28.2.1992
Hermann Guðmundsson, fyrrverandi formaður Verkamannafélagsins Hlífar í Hafnarfirði og framkvæmdastjóri Íþróttasambands Íslands, lést í Borgarspítalanum í gær, fimmtudaginn 27. febrúar, á 78. aldursári.
Hermann fæddist 15. júní 1914 í Reykjavík. Hann var sonur hjónanna Guðmundar Guðlaugssonar vélstjóra og Marsibil Eyleifsdóttur. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Flensborg 1932 og var að því loknu verkamaður og sjómaður í Hafnarfirði um hríð. Hann var erindreki Sjálfstæðisflokksins 1939-42 og alþingismaður 1946-49. Hann var framkvæmdastjóri Íþróttasambands Íslands 1951-85.
Hermann var formaður Knattspyrnufélagsins Hauka 1933-38. Hann átti sæti í íþróttaráði Hafnarfjarðar 1935-45 og var í stjórn Íþróttabandalags Hafnarfjarðar 1945-59. Hann var formaður Íþróttanefndar ríkisins 1946-49, en átti sæti í nefndinni til 1952. Hann var formaður Verkamannafélagsins Hlífar 1940-52 og 1954-78 og formaður fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði frá 1977. Hann var bæjarfulltrúi í Hafnarfirði 1942-43 og í útgerðarráði BÚH sama tíma. Hermann var í stjórn ASÍ 1942-48 og 1968-80, en hann var forseti ASÍ 1944-48. Hann var ritari í stjórn Verkamannasambands Íslands 1964-68 og varaformaður 1968-76. Hann var formaður stjórnar Sparisjóðs alþýðu 1966-70 og formaður stjórnar Alþýðubankans 1970-76. Hermann var sæmdur ýmsum heiðursmerkjum, bæði erlendum og innlendum, fyrir störf sín á sviði íþróttaog félagsmála.
Eftirlifandi eiginkona Hermanns Guðmundssonar er Guðrún Ragnheiður Erlendsdóttir.
Hermann var um skeið starfsmaður Sjóminjasafns Íslands í Hafnarfirði og vann þá mikið að ýmiss konar viðgerðum. Þetta var um 1986 - 1990.
Tengd aðföng




