Jóhanna Sigurðardóttir
4.10.1942
Staða
Alþingismaður
Staður
Staður: Háaleitisbraut 109, 108-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
For.: Sigurður Egill Ingimundarson (f. 10. júlí 1913, d. 12. okt. 1978) alþm. og forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins og k. h. Karítas Guðmundsdóttir (f. 19. des. 1917, d. 26. ágúst 1997) húsmóðir.
M. 1. (28. febr. 1970) Þorvaldur Steinar Jóhannesson (f. 3. mars 1944) bankastarfsmaður í Reykjavík. Þau skildu. For.: Jóhannes Eggertsson og k. h. Steinunn G. Kristinsdóttir.
M. 2. (15. júní 2002) Jónína Leósdóttir (f. 16. maí 1954) blaðamaður og leikskáld. For.: Leó Eggertsson og k. h. Fríða Björg Loftsdóttir. Synir Jóhönnu og Þorvalds: Sigurður Egill (1972), Davíð Steinar (1977).
Sonur Jónínu: Gunnar Hrafn Jónsson (1981).
Verslunarpróf VÍ 1960.
Flugfreyja hjá Loftleiðum 1962-1971. Skrifstofumaður í Kassagerð Reykjavíkur 1971-1978. Skip. 8. júlí 1987 félagsmálaráðherra, lausn 17. sept. 1988, en gegndi störfum til 28. sept. Skip. 28. sept. 1988 félagsmálaráðherra, lausn 23. apríl 1991, en gegndi störfum til 30. apríl. Skip. 30. apríl 1991 félagsmálaráðherra í þriðja sinn, lausn 24. júní 1994.
Í stjórn Flugfreyjufélags Íslands 1966-1969, formaður 1966 og 1969. Í stjórn félagsins Svölurnar 1974 -1976, formaður 1975. Í stjórn Verslunarmannafélags Reykjavíkur 1976-1983. Varaformaður Alþýðuflokksins 1984-1993. Formaður í stjórnarnefnd um málefni þroskaheftra og öryrkja 1979-1983. Í nefnd til að undirbúa frumvarp um tilhögun og framkvæmd fullorðinsfræðslu og endurskoðunar laga um almannatryggingar 1978. Í tryggingaráði 1978-1987, formaður þess 1979-1980. Sat á þingi Alþjóðaþingmannasambandsins 1980-1985. Formaður Þjóðvaka 1995.
Alþm. Reykv. 1978-2003 (landsk. 1979-1987) (Alþfl., Ufl., Þjóðv., JA., Samf.), alþm. Reykv. s. síðan 2003 (Samf.).
Félagsmálaráðherra 1987-1994.
2. varaforseti Nd. 1979, 1. varaforseti Nd. 1983-1984, 4. varaforseti Alþingis síðan 2003.
Utanríkismálanefnd 1995-1996, iðnaðarnefnd 1995-1999, sérnefnd um stjórnarskrármál 1995-1997 og 1999-2000 og 2004-, allsherjarnefnd 1996-1999, efnahags- og viðskiptanefnd 1999-, kjörbréfanefnd 1999-2003, félagsmálanefnd 2003-.
Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins 1996-2003, Íslandsdeild ÖSE-þingsins 2003-.
Heimildir:
www.althingi.is
Tengd aðföng










