Stefán Jóhann Stefánsson
20.7.1894 - 20.10.1980
Staða
Sendiherra, Ráðherra
Staður
Staður: Grænahlíð 11, 105-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Hlíðar, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
For.: Stefán Ágúst Oddsson (f. 18. ágúst 1850, d. 10. júní 1894) bóndi þar og k. h. Ólöf Árnadóttir (f. 23. maí 1851, d. 17. jan. 1940) húsmóðir.
K. (5. okt. 1927) Helga Björnsdóttir (f. 28. ágúst 1903, d. 28. júní 1970) húsmóðir. For.: Björn Ólafsson Ólafs og k. h. Valgerður Guðmundsdóttir Ólafs. Synir: Stefán Valur (1929), Björn (1934), Ólafur (1940).
Stúdentspróf MR 1918. Lögfræðipróf HÍ 1922. Hrl. 1926. Kynnti sér félagsmálalöggjöf á Norðurlöndum 1928 með styrk úr sáttmálasjóði.
Starfsmaður bæjarfógetans í Reykjavík á háskólaárum sínum og til haustsins 1923. Fulltrúi hjá Jóni Ásbjörnssyni hæstaréttarlögmanni 1922—1925. Stofnaði 1925 málaflutningsskrifstofu í Reykjavík og rak hana með öðrum málaflutningsmönnum til 1945. Skip. 17. apríl 1939 félagsmálaráðherra og fór jafnframt með utanríkismál, lausn 7. nóv. 1941, en gegndi störfum til 18. nóv. Skip. 18. nóv. 1941 utanríkis- og félagsmálaráðherra, lausn 17. jan. 1942. Framkvæmdastjóri Brunabótafélags Íslands 1945—1957. Skip. 4. febr. 1947 forsætis- og félagsmálaráðherra, lausn 2. nóv. 1949, en gegndi störfum til 6. des. Skip. 1957 sendiherra í Danmörku, jafnframt sendiherra í Írlandi og frá 1958 sendiherra í Tyrklandi, lausn 1965.
Í miðstjórn Alþýðuflokksins 1924—1940. Bæjarfulltrúi í Reykjavík 1924—1942, í bæjarráði frá 1932. Formaður fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna 1927—1929. Átti sæti í menntamálaráði 1928—1934. Í bankaráði Útvegsbankans 1930—1957, formaður þess frá 1935. Skip. 1934 í lögfræðinganefnd til að semja nýja réttarfarslöggjöf, 1935 í Norðurlandanefnd um fjármál og viðskiptamál. Í stjórn Byggingarsjóðs verkamanna 1935—1957, í tryggingaráði 1936—1939, formaður. Formaður Norræna félagsins 1936—1952. Formaður Alþýðuflokksins 1938—1952, forseti Alþýðusambandsins 1939—1940. Kosinn 1938 í dansk-íslenska ráðgjafarnefnd, 1942 í stjórnarskrárnefnd. Fulltrúi Íslands á fiskimálaráðstefnu í London í okt. 1943. Skip. 1945 í samninganefnd um sænsk-íslensk viðskipti og kosinn í skiptanefnd skáldastyrks og listamanna. Í dansk-íslenskri samninganefnd vegna sambandsslitanna 1945—1946 og í Þingvallanefnd 1946—1950. Í Norðurlandaráði 1953. Fulltrúi á þingi Evrópuráðsins 1950—1957.
Landsk. alþm. (Reykv.) 1934—1937 og (Eyf.) 1946—1953, alþm. Reykv. 1942—1946 (Alþfl.).
Félagsmálaráðherra 1939—1941, utanríkis- og félagsmálaráðherra 1941— 1942, forsætis- og félagsmálaráðherra 1947—1949.
1. varaforseti Nd. 1934— 1937, 1. varaforseti Sþ. 1944—1947.
Ritstjóri: Ritaði Minningar í tveim bindum, sem komu út 1966 og 1967.
Tengd aðföng









