Magnús Gestsson

29.9.1909 - 29.9.2000
Staða
Kennari, Safnvörður, Trésmiður, Bóndi, Oddviti
Staður
Staður: Byggðasafn Dalamanna, Laugum í Sælingsdal, Dalabyggð Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð Sveitarfélag 1950: Hvammshreppur Dal. Staður: Ormsstaðir, 371-Búðardal, Dalabyggð Sveitarfélag 1950: Klofningshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Magnús Gestsson. Fæddur 29. september 1909 á Ormsstöðum. Dáinn 29. september 2000. Alinn upp á Ormsstöðum í Klofningi. Magnús var búfræðingur frá Hvanneyri 1931. Bóndi á Ormsstöðum 1931-36. Oddviti í Klofningshreppi 1934-36. Héraðsskólinn í Reykholti 1936-37. Trésmiður frá Iðnskólanum í Reykjavík 1953 og fékk síðar meistararéttindi. Trésmiður í Reykjavík 1941-61. Magnús kenndi um land allt á árunum 1927-1977. Safnvörður Byggðasafns Dalamanna 1977-1998. Skrifaði bækurnar Látrabjarg 1971, Mannlíf og mórar í Dölum 1972 og Úr vesturbyggðum Barðarstrandarsýslu 1973. Magnús var sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu 1. janúar 1985 fyrir störf sín að Byggðasafni Dalamanna. For. Gestur Magnússon (1867-1931) frá Dæli í Víðidal og Guðrún Jónsdóttir (1871-1953) frá Indriðastöðum í Skorradal. Búandi á Ormsstöðum. Systkini Magnúsar voru Sigrún (1911-1994) og Baldur (1912-2001). Synir Magnúsar eru Gestur Bragi (1957) og Björn Rúnar (1960).
Tengd aðföng