Guðbrandur Jörundsson

21.1.1854 - 24.3.1936
Staða
Bóndi, Vesturfari
Staður
Staður: Saurar, 371-Búðardal, Dalabyggð, Laxárdalur, Ísland Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð, Ísland Sveitarfélag 1950: Laxárdalshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Bóndi í Snóksdal í Miðdölum, Teigi o.v. í Hvammssveit og á Saurum í Laxárdal 1891-1903. Fór til Vesturheims 1903 og bjó í Grunnavatnsbyggð. Kom heim til Íslands í kynnisferð 1924. Dó að Lundar í Manitoba. Fyrri kona Guðbrandar var Kristín Halldórsdóttir frá Litlu-Gröf. Ekkert barna þeirra lifði. Seinni kona hans var Jóhanna Ásgeirsdóttir frá Kýrunnarstöðum. Börn þeirra voru Ásgeir 1890-1965, Kristleifur 1890, Kristinn 1893, Herdís 1895, Þuríður Dagfríður 1896, Kristín 1899-1963, Óskar Hólm, Aðalheiður Jany og Guðjón Franklín. Var á Hólmlátrum, Breiðabólstaðarsókn, Snæf. 1870. Bóndi í Snóksdal í Snóksdalssókn, Dal. 1880. Húsbóndi á Teig, Hvammssókn, Dal. 1890. Bóndi á Saurum í Laxárdal, Dal. 1891-1903. Fór til Vesturheims 1903 frá Saurum í Laxárdalshreppi, Dal. Var í Dauphin, Manitoba, Kanada 1911. Bjó í Grunnavatnsbyggð. Börn: Óskar Holm í Riverton, Aðalheiður Jany átti R. J. McNutt í Los Angeles og Guðjón Franklín í Winnipeg.     Heimildir: Jón Guðnason. 1961. Dalamenn I. Bls. 372-373. Jón Guðnason. 1966. Dalamenn III. Bls.308 og 356 Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr: 25505-28521. (1969-1974)
Tengd aðföng