Bergþór Ólafur Jónsson

21.9.1853 - 25.6.1909
Staða
Bóndi, Vesturfari
Staður
Staður: Hornstaðir, 371-Búðardal, Dalabyggð, Laxárdalur, Ísland Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð, Ísland Sveitarfélag 1950: Laxárdalshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Bergþór Ólafur Jónsson. Var heima hjá foreldrum sínum fram undir þrítugt. Fluttist svo suður í Mýrasýslu. Stofnaði heimili á Hamraendum í Stafholtstungum 1885. Fór til Vesturheims 1886. Var tæp tvö ár í Winnipeg. Síðan bóndi í Þingvallanýlendu í Saskatchewan til æviloka. Búskapur hans var í fremur smáum stíl, en hann fór vel með allt, sem hann hafði undir höndum, og hafði nóg fyrir að leggja. Kona Bergþórs var Þórunn Stefánsdóttir frá Kalmannstungu. Þau áttu ekki barn sem lifði.  Heimildir: Jón Guðnason. 1966. Dalamenn III. Bls. 278.  Lögberg 3.8.1916. 29. árg. 31. tbl. Bls. 5.
Tengd aðföng