Axel Valdemar Tulinius
6.6.1865 - 8.12.1937
Staða
Sýslumaður, Alþingismaður, Forstjóri, Lögfræðingur
Staður
Staður: Laufásvegur 22, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Þingholt, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Axel Valdemar Tulinius fæddist á Eskifirði, dó í Kaupmannahöfn.
For: Carl Daniel Tulinius, kaupmaður og ræðismaður á Eskifirði og Guðrún Þórarinsdóttir, f. 09.04.1835, d. 30.08.1904..
Maki: Guðrún Hallgrímsdóttir Tulinius, f. 14.02.1875, d. 05.11.1954.
Börn þeirra: Hallgrímur Axel, Guðrún Agla, Carl Daniel, Erling Gustav.
Nám: Stúdent Reykjavík 1884. Cand. juris frá Hafnarháskóla 1891. Yfirréttarmálfl.m. 1911.
Störf: Lögregluþjónn í Kaupmannahöfn. Fulltrúi hjá bæjarfógeta í Reykjavík. Sýslumaður í Norður- og Suður- Múlasýslu. Yfirréttarmálflutningsmaður.
Forstjóri Sjóvá-tryggingarfélags Íslands frá stofnun þess. Þingmaður Suður-Múlasýslu. Ræðismaður Portúgals.
Framkvæmdastjóri á Laufásvegi 22, Reykjavík 1930. Sýslumaður N-Múl og síðar í S-Múl., málflutningsmaður og umboðsmaður í Reykjavík. Forseti íþróttasambands Íslands í Reykjavík. „Fékk verðlaunapeining fyrir björgun manna úr sjávarháska“ segir í ÍÆ.
Heimildir:
Gunnlaugur Haraldsson: Lögfræðingatal, 1993, bls. 127. Reykjavík.
https://www.islendingabok.is/search
Tengd aðföng










