Ármann Ingimagn Halldórsson

31.12.1892 - 26.6.1956
Staða
Skipstjóri
Staður
Staður: Vesturgata 23, Hofteigur, 300-Akranes, Akraneskaupstaður, Akranes, Ísland Núverandi sveitarfélag: Akraneskaupstaður, Akraneskaupstaður Sveitarfélag 1950: Akranes
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Fæddur í Götuhúsum Akranesi, 31.12.1892. Bjó í Rvík árin 1916 - 1918 síðan á Akranesi á Hofteigi (Vesturgötu 23) til dánadags 26061956. Var fom. á áraskipi frá 1913, útgerðarmaður, og skipstjóri frá 1915, fyrst á fiskiskipum, síðan á þriðja áratug í fólks og vöruflutningum milli Akraness og Rvík, lengst með m/s ,,Fagranesi". Síðustu árin starfaði hann sem bifreiðarstjóri. Eiginkona hans Margrét Sólveig Sigurðardóttir f. 17.08.1897 Heimildir: Æviskrár Akurnesinga I. Skráð af Ara Gíslasyni. Prentverk Akraness gaf út bókina.
Tengd aðföng