Jón Mýrdal Jónsson

10.7.1825 - 15.3.1899
Staða
Húsmaður, Forsmiður, Rithöfundur, Snikkari, Skáld
Staður
Staður: Innri-Hólmur, 301-Akranesi, Hvalfjarðarsveit Núverandi sveitarfélag: Hvalfjarðarsveit, Hvalfjarðarsveit Sveitarfélag 1950: Innri-Akraneshreppur Sveitarfélag 1950: Skarðshreppur Dal. Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð, Ísland Staður: Rauðseyjar, 371-Búðardal, Dalabyggð, Skarðsströnd, Ísland Sveitarfélag 1950: Dyrhólahreppur Sveitarfélag 1950: Akranes
Annað nafn
Jón Mýrdal
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Jón Mýrdal Jónsson. Fæddur 10. júlí 1825 í Hvammi í Mýrdal. Dáinn 15. mars 1899 í Vík á Akranesi.Trésmiður, skáld og fleira. Var komið fyrir í bóknám til sr. Sveinbjörn Hallgrímssonar. þá aðstoðarprestur á Kálfatjörn. Lauk trésmíðarnámi í Reykjavík 1852. Trésmiður á Illugastöðum í Fnjóskadal 1852-1854. Var í Kaupmannahöfn 1954-1856 við frekara iðnnám. Vann við smíðar á Norðurlandi 1856-1878 og flytur þá vestur á heimaslóðir Önnu Valgerðar seinni konu sinnar. Húsmaður og snikkari á Þórustöðum í Bitru 1880. Var á Skarði á Skarðsströnd 2 ár, í Rauðseyjum 1884-1890. Flutti í Innri-Hólm á Akranesi 1890 og bjó þar síðan. Skáldsögur Jóns eru Mannamunur 1872, Grýla 1873 og Skin eftir skúrir 1886. Forsmiður að Innra-Hólmskirkju í Innra-Akraneshreppi 1891. Vann að mestu innansmíð í Lögmannshlíðarkirkju við Akureyri. Timburhús reist 1860. For. Jón Helgason og Steinunn Ólafsdóttir í Hvammi í Mýrdal.  Fyrri kona (skildu) Jóns var Guðrún Rannveig Jónsdóttir frá Illugastöðum í Fnjóskadal. Dóttir þeirra var Kristín Salóme (1854-1885). Seinni kona Jóns var Anna Valgerður Bjarnadóttir frá Frakkanesi. Þau voru barnlaus. Sonur Önnu var Stefán Stefánsson. Heimildir: Finnur Sigmundsson. 1975. Skáldið sem skrifaði Mannamun. Sendibréf frá Jóni Mýrdal. Jón Guðnason. 1961. Dalamenn II. Bls 292. Skrá yfir friðuð hús. Húsafriðunarnefnd ríkisins.
Tengd aðföng