Óskar Jónsson
3.9.1899 - 26.04.1969
Staða
Skrifstofumaður, Alþingismaður
Staður
Núverandi sveitarfélag: Mýrdalshreppur, Mýrdalshreppur
Sveitarfélag 1950: Dyrhólahreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting: F. í Nesi í Norðfirði.
For.: Jón Eyleifsson
(f. 18. apríl 1880, d. 3. júní 1968) síðar sjómaður í Hafnarfirði og Ragnhildur
Gunnarsdóttir (f. 27. júlí 1869, d. 6. febr. 1945) húsmóðir.
Faðir Baldurs Óskarssonar
vþm.
K. (1. okt. 1933)
Katrín Ingibergsdóttir (f. 8. okt. 1908) húsmóðir. For.: Ingibergur Þorsteinsson
og 2. k. h. Guðríður Árnadóttir.
Börn: Ásdís (1933),
Baldur (1940).
Nám í unglingaskóla í Vík tvo vetur.
Vann ýmis störf á sjó og landi til 1936. Síðan skrifstofumaður hjá Kaupfélagi
Skaftfellinga í Vík fram til 1960. Félagsmálafulltrúi Kaupfélags Árnesinga
frá 1960 til æviloka og átti þá heima á Selfossi.
Sýslunefndarmaður Vestur-Skaftafellssýslu 1954—1960. Alþm. V.-Skaft. 1959
(Framsfl.).
Vþm. Suðurl. mars—apríl 1963, febr.—mars, apríl og okt.—nóv. 1964, mars
1965, mars—apríl 1966 og apríl 1967.
Heimildir: Vestur Skaftfellingar III, 213.,
althingi.is
Tengd aðföng






