Sigurður Hlíðar
4.4.1885 - 18.12.1962
Staða
Alþingismaður, Dýralæknir
Staður
Núverandi sveitarfélag: Akureyrarbær, Akureyrarbær
Sveitarfélag 1950: Akureyri
Ítarupplýsingar
Vefbirting: For.: Einar Einarsson
(f. 24. sept. 1853, d. 7. jan. 1891) trésmiður þar og k. h. Sigríður Jónsdóttir
(f. 2. mars 1852, d. 4. jan. 1915) húsmóðir. Faðir Jóhanns Hlíðars vþm.
K. (12. mars 1910)
Guðrún Louisa Guðbrandsdóttir Hlíðar (f. 18. sept. 1887, d. 6. júní 1963)
húsmóðir. For.: Guðbrandur Teitsson og k. h. Louise Jacobine Frederikke
Zimsen.
Börn: Brynja (1910),
Skjöldur (1912), Gunnar (1914), Guðbrandur (1915), Jóhann (1918).
Fjórða bekkjar próf Lsk. 1904. Dýralæknispróf við dýralækna- og landbúnaðarháskólann
í Kaupmannahöfn 1910. Sótti 1922 þriggja mánaða námskeið við sama skóla.
Sérnám við rannsóknarstofnun í Kiel í Þýskalandi veturinn 1929— 1930.
Skip. 1910 dýralæknir í Norðlendinga- og Austfirðingafjórðungi, frá 1918
einungis í Norðlendingafjórðungi, sat á Akureyri. Skip. 1943 yfirdýralæknir
landsins og jafnframt héraðsdýralæknir í Reykjavík, lausn 1. jan. 1956.
Í stjórn Ræktunarfélags Norðurlands 1912—1943, formaður frá 1921. Búnaðarþingsfulltrúi
1920—1931. Bæjarfulltrúi á Akureyri 1917—1938, forseti bæjarstjórnar
frá 1932. Vararæðismaður Þjóðverja á Akureyri 1927—1940. Átti sæti í fulltrúaráði
Rannsóknarstofnunar Háskólans 1936—1939. Kosinn 1943 formaður mþn. í mjólkurmálum.
Skip. 1948 í nefnd til að taka þátt í Alþjóðafuglaverndunarsambandinu af
Íslands hálfu (The International Committee for Bird Preservation) og 1957
í dýraverndarnefnd. Stofnandi og formaður Dýralæknafélags Íslands 1934—1943.
Formaður Dýraverndunarfélags Íslands 1943—1953.
Alþm. Ak. 1937—1949 (Sjálfstfl.).
Samdi rit um alidýrasjúkdóma og tók saman ritið Nokkrar Árnesingaættir
(1956).
Ritstjóri: Dagblaðið (1914—1915). Íslendingur (1915—1920). Einar Þveræingur
(1926).
Heimildir: Aðfangabók Þjóðminjasafnsins
Mannamyndasafn 17843-21805 (1949-1956)
Tengd aðföng




