Valdís Þórðardóttir

27.6.1920 - 13.2.2009
Staða
Húsfreyja
Staður
Staður: Búðardalur 2, 371-Búðardal, Dalabyggð Sveitarfélag 1950: Skarðshreppur Dal. Staður: Klúka í Miðdal, 510-Hólmavík, Strandabyggð Sveitarfélag 1950: Kirkjubólshreppur Staður: Gunnarsbraut 8, Silfurtún, 370-Búðardal, Dalabyggð
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Valdís Þórðardóttir (Dísa). Fædd 27. júní á Klúku í Miðdal. Dáin 13. febrúar 2009 á Silfurtúni. Ólst upp á Klúku og átti þar heima til 1958. Var í vist á Akureyri. Húsfreyja í Búðardal II á Skarðsströnd frá 1958-2003. Sinnti ýmsum félagsmálastörfum, sóknarnefnd Skarðskirkju, barnaverndarnefnd Skarðshrepps, lestrarfélag Skarðshrepps kirkjukór Skarðskirkju og Þorrakórnum. Dvaldi á Silfurtúni 2003-2009. For. Þórður Þórðarson (1883-1954) og Guðrún Finnbogadóttir (1885-1972) á Klúku og í Stóra-Fjarðarhorni í Kollafirði. Systkini Dísu voru Aðalbjörn Þórhallur (1916-1950), Benedikt Finnbogi (1917-1994), Sigurrós Guðbjörg (1924), Sigríður (1930) og Guðrún Sesselja (1930-2003). Maður Dísu var Þorsteinn Jón Nordal Karlsson (1916-2004) bóndi. Dætur Þorsteins og stjúpdætur Dísu eru Guðrún (1947) og Guðbjörg (1950). Heimildir: Jón Guðnason. 1961. Dalamenn II. Bls. 331-332. Minning - Valdís Þórðardóttir. Morgunblaðið 21.2.2009. Bls. 34.
Tengd aðföng