Vilborg Harðardóttir

13.9.1935 - 15.08.2002
Staða
Blaðamaður, Alþingismaður
Staður
Staður: Laugavegur 46b, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting: For.: Hörður Gestsson (f. 2. okt. 1910, d. 6. mars 1975) bílstjóri þar og k. h. Ragnheiður Sveinsdóttir (f. 29. nóv. 1900, d. 28. des. 1987) ritari. Móðir Marðar Árnasonar alþm. M. (9. okt. 1954) Árni Hlíðdal Björnsson (f. 16. jan. 1932) þjóðháttafræðingur. Þau skildu. For.: Björn Magnússon og k. h. Hólmfríður Margrét Benediktsdóttir. Börn: Mörður (1953), Ilmur (1958), Dögg (1964). Stúdentspróf MR 1955. BA-próf í ensku, norsku og kennslufræði HÍ 1962. Nám í bókmenntum við Freie Universität í Vestur-Berlín 1964. Skrifstofustörf í Reykjavík ásamt námi 1955-1956 og 1958-1959. Blaðamennska hjá World Student News, Prag, 1957. Blaðamaður við Þjóðviljann með hléum 1960-1979, fréttastjóri þar 1979-1981. Kennari við háskólann í Greifswald 1962, gagnfræðastig í Reykjavík 1962-1963 og 1971-1972 og blaðamennskunámskeið í Tómstundaskólanum 1986-1992. Vann hjá sjónvarpi veturinn 1973-1974. Ritstjóri Norðurlands á Akureyri 1976-1977 og 1978. Kynningar- og útgáfustjóri Iðntæknistofnunar 1981-1988. Skólastjóri Tómstundaskólans 1988-1992. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda síðan 1992. Skip. 1975 í nefnd til endurskoðunar tryggingakerfisins. Ein af stofnendum Rauðsokkahreyfingarinnar. Vann við Stúdentasöfnunina 1976. Alþm. Reykv. okt.- maí (allt þingið) 1975-1976 (vþm., Alþb.). Vþm. Reykv. febr.-maí 1978. Ritstjóri: Sunnudagsblað Þjóðviljans (1974-1975). Jafnréttissíða Þjóðviljans (1973-1976). Norðurland (1976-1977, 1978). Fréttabréf Iðntæknistofnunar, Púlsinn (1983-1988). Íslensk bókatíðindi (1993-1995). Heimildir: Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr: 25505-28521. (1969-1974)
Tengd aðföng