Björg Carítas Þorláksson

30.1.1874 - 25.2.1934
Staða
Vísindamaður, Kennari, Fræðimaður, Dr. phil.
Staður
Núverandi sveitarfélag: Kaupmannahöfn, Kaupmannahöfn
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Björg Caritas Þorláksdóttir var fædd í Vesturhópshólum í Húnaþingi 30. janúar 1874, Foreldrar: Þorlákur Símon Þorláksson f. 28.03.1849, d. 22.11.1908 og Margrét Jónsdóttir f. 26.11.1835, d. 22.11.1908. Maki: Sigfús Blöndal bókavörður, þau skildu. Barnlaus Störf: Kennari á Ytri-Ey. Þýðandi. Björg gekk í Kvennaskólann á Ytri-Ey 1890-93 og var síðan kennari þar í þrjú ár, 1894-97. Sigldi til Kaupmannahafnar, stundaði þar bóknám frá 1897, við Kennaraháskólann þar 1898-1900 og varð stúdent frá Lyceum-skólanum 1901 (utanskóla), cand. phil. 1902 og las síðan málfræði og heimspeki við Kaupmannahafnarháskóla.  Hún giftist 1903 Sigfúsi Blöndal, bókaverði þar, og vann með honum að íslenzk-dönsku orðabókinni af miklu kappi. Þau hjónin skildu (barnlaus), og hætti hún þá að bera ættarnafn hans, en tók upp eftirnafn föður síns. Hún fekk 1920 styrk til framhaldsnáms í heimspeki úr sjóði Hannesar Árnasonar til fjögurra ára og flutti fyrirlestra í Reykjavík 1924. Voru þeir um sama efni og doktorsritgerð hennar, Le fondement physiologique des instincts des systèmes nutritif, neuromusculaire et génital, sem hún varði við Sorbonne í París 17. júní 1926 og varð þá dr. phil. Björg var kjörin félagi í Vísindafélagi Íslendinga 1928. Hún var mikilhæf, ekki aðeins á sviði vísinda, heldur einnig skáldmælt og reit fjölda bóka, en féll frá fyrir aldur fram þann 25. febrúar 1934 í Kaupmannahöfn.    Heimildir: https://gardur.is/einstakl.php?nafn_id=242718
Tengd aðföng