Jón Stefán Bjarni Jónsson
18.1.1861 - 6.10.1928
Staða
Vesturfari, Kaupmaður, Bóndi, Trésmiður
Staður
Núverandi sveitarfélag: Winnipeg, Winnipeg
Sveitarfélag 1950: Hörðudalshreppur
Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð, Ísland
Staður: Dunkárbakki, 371-Búðardal, Dalabyggð, Hörðudalur, Ísland
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Lærði trésmíði hjá Boga Smith í Arnarbæli og stundaði þá iðn í Reykjavík og víðar 1882-87. Fór til Vesturheims 1887 og staðnæmdist í Winnipeg. Vann við húsasmíðar og rak síðar verslun. Kom heim 1899, alkominn, og settist þá að á Dunkárbakka í Hörðudal; var hann þar aðeins 1 1/2 ár, en þó síðar kenndur við þann bæ. Var eftir það búsettur í Reykjavík, nema árin 1907-1913, er hann bjó á Reykjum í Mosfellssveit. Hafði brennandi áhuga á umbótum í verklegum efnum, einkum búskap og iðnaði, og innleiddi hér ýmsar vélar og verkfæri. Má nefna sem dæmi, að hann lét fyrstur manna gerilsneyða mjólk hér á landi, og á Reykjum leiddi hann hveravatn heim til hitunar. Hann ritaði greinar í blöð og gaf einnig sjálfur út blöð til þess að kynna áhugamál sín.
Heimildir:
Jón Guðnason. Dalamenn III. Útg. 1966. Bls. 458.
Tengd aðföng

