Jón Hákon Magnússon
12.9.1941 - 18.07.2014
Staða
Framkvæmdastjóri, Blaðamaður
Staður
Staður: Látraströnd 6, 170-Seltjarnarnesi, Seltjarnarneskaupstaður
Núverandi sveitarfélag: Seltjarnarneskaupstaður, Seltjarnarnesbær
Sveitarfélag 1950: Seltjarnarneshreppur
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Framkvæmdastjóri KOM almannatengsla sem hann stofnaði ásamt eiginkonu sinni.
Jón Hákon Magnússon fæddist í Reykjavík 12. september 1941. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 18. júlí 2014.
ón Hákon var sonur hjónanna Svövu Sveinsdóttur húsmóður, f. 12.9. 1909, d. 9.12. 1990 og Magnúsar Guðjóns Kristjánssonar skrifstofustjóra, f. 13.7. 1904, d. 2.11. 1993.
Bróðir Jóns Hákonar var Ásgeir Haukur Magnússon, f. 23.7. 1936, d. 12.7. 2003,
Jón Hákon kvæntist Áslaugu Guðrúnu Harðardóttur, f. 1.11. 1941 þann 30.9. 1961. Börn þeirra eru Áslaug Svava, f. 20.7. 1975, maki Haukur Marinósson, f. 29.9. 1967, og Hörður Hákon, f. 22.5. 1976.
Árið 1960 hélt Jón Hákon til Bandaríkjanna þar sem hann hóf nám við Macalester College í St. Paul í Minnesota. Árið 1964 lauk hann BA-prófi í stjórnmálafræði, sögu og blaðamennsku. Árið 2004 veitti skólinn Jóni Hákoni sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi ævistarf.
Á unglingsárum hóf Jón Hákon hóf störf sem blaðamaður hjá Tímanum og starfaði síðar um árabil sem blaðamaður, bæði hér á landi og í Bandaríkjunum. Hann var framkvæmdastjóri Slippfélagsins í Reykjavík, skrifstofustjóri hjá Flughjálp vegna Biafra-stríðsins, fréttamaður og þáttastjórnandi á fréttastofu Sjónvarps 1970-1979, sölu- og markaðsstjóri hjá bílaumboðinu Vökli hf. 1979-1981, framkvæmdastjóri markaðssviðs Hafskips hf. 1982-1985. Hann stofnaði KOM almannatengsl árið 1986 ásamt eiginkonu sinni og var framkvæmdastjóri fyrirtækisins fram til síðustu áramóta. Jón Hákon var blaðafulltrúi vegna 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar 1974. Hann skipulagði einnig og annaðist rekstur alþjóðlegu fjölmiðlamiðstöðvarinnar vegna leiðtogafundar Reagans og Gorbatsjovs í Höfða árið 1986.
Jón Hákon tók virkan þátt í opinberri umræðu, skrifaði greinar í erlend dagblöð og tímarit um íslensk málefni og fjölda greina í innlend blöð og tímarit auk þess að vera álitsgjafi í fjölda útvarps- og sjónvarpsþátta. Hann gegndi fjölmörgum félags- og trúnaðarstörfum. Var m.a. í bæjarstjórn Seltjarnarness og forseti bæjarstjórnar um tíma og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann var um langt árabil í forystu Samtaka um vestræna samvinnu, umdæmisstjóri Rótarýhreyfingarinnar starfsárið 1993-1994 og sat í varastjórn Ríkisútvarpsins síðasta ár.
Störf: Blaðamaður á tímanum, sölustjóri hjá Vökli, skrifstofustjóri á Sao Tomé vegna Biafrastríðsins, blaðafulltrúi vegna 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar, fréttamaður hjá Rúv, framkvæmdastjóri markaðssviðs Hafskips, og stofnandi KOM ehf.
Heimildir:
Pétur Ástvaldsson, 2003. Samtíðarmenn, bls. 472. Reykjavík.
https://www.islendingabok.is/search
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1518150/?item_num=2&searchid=7f97f830dd12eef9a19a4ac9d7fd17abf036d0d3
Tengd aðföng











