Guðmundur Finnbogason

18.8.1900 - 30.05.1987
Staða
Járnsmiður
Staður
Staður: Grettisgata 20b, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík Staður: Harrastaðir, 371-Búðardal, Dalabyggð
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Guðmundur Finnbogason. Vinnumaður í Lækjarskógi í Laxárdal. Lærði járnsmíði á Hvammstanga. Járnsmiður Grettisgötu 20b, Reykjavík. Járnsmiður hjá Sigurjóni Péturssyni á Álafossi, Vélsmiðjunni Héðni. Rak síðan smiðju á Bergþórugötunni, Laugavegi og síðast Grettisgötu 20b til ársins 1982. For. Finnbogi Helgason bóndi í Hítardal og Sigurlaug Guðmundsdóttir vinnukona á Harrastöðum. Ólst upp hjá móðir sinni í vist hjá Hildiþór Hjálmtýssyni og Kristínu Baldvinsdóttur á Harrastöðum í Miðdölum.  Kona Guðmundar var Lilja Magnúsdóttir (1898-1972) frá Lækjarskógi.  Börn þeirra voru Ragnheiður (1924-2019), Sigurlaug (1926-2010), Jensína Kristín (1928-1991), Finnbogi (1930-1978), Helga Perla (1939-2021),  og Hrafnhildur Petra (1941-2017). Heimildir: Minning- Guðmundur Finnbogason. Morgunblaðið 7.6.1987. Bls. 45.
Tengsl við
Tengd aðföng