Jón Þorláksson

3.3.1877 - 20.3.1935
Staða
Skólastjóri, Borgarstjóri, Forsætisráðherra
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting: Jón stundaði nám við DTH (Danmarks Tekninske Höjskole) í Kaupmannahöfn. Hann lauk prófi í byggingaverkfræði 1903. Hann var fjármálaráðherra 1924-1927, forsætisráðherra 1926-1927 og borgarstjóri í Reykjavík 1933-1935. Gerði breytingar á Miðbæjarskólanum 1920-1922. [Úr Verkfræðingatali, 120.] Fæddur í Vesturhópshólum. Foreldrar: Þorlákur Þorláksson, bóndi og hreppstjóri, Vesturhópshólum (f. 28.03.1949, d. 22.11. 1908) og Margrét Jónsdóttir (f. 27.11.1835, d. 15.09.1927). Stúdent 1897 Reykjavík. Verkfræðipróf 1903 Kaupmannahöfn. Starfaði á vegum landsstjórnarinnar að rannsóknum á byggingarefnum og húsagerð hér á landi 1903-1905. Landsverkfræðingur 1905-1917. Rak sjálfstæða verkfræðiskrifstofu ásamt byggingarvöruverslun í Reykjavík 1917-1923, en frá 1923 byggingarvöruverslun í félagi við Óskar Norðmann til æviloka. Skip. 22. mars 1924 fjármálaráðherra, settur 6. júlí 1926 jafnframt forsætisráðherra í stað Jóns Magnússonar, sem látist hafði 23. júní. Skip. 8. júlí 1926 forsætis- og fjármálaráðherra, lausn 28. júlí 1927, en falið að gegna embættinu áfram til myndunar nýs ráðuneytis 28. ágúst 1927. Kosinn 30. des. 1932 borgarstjóri í Reykjavík frá 1. jan. 1933 að telja og gegndi því starfi til æviloka. Skólastjóri Iðnskólans í Reykjavík frá stofnun hans 1904-1911, stundakennari 1916-1917. Form. Verkfræðingafélags Íslands 1912-1914 og 1922-1924. Formaður mþn. til undirbúnings Flóaáveitunnar 1916-1917. Í mþn. um vatnamál (fossanefndinni) 1918-1920. Forseti bæjarstjórnar Reykjavíkur 1920-1922. Formaður Íhaldsflokksins 1924-1929, Sjálfstæðisflokksins 1929-1934. Í landsbankanefnd 1928-1935. Kosinn 1928 í mþn. um tolla- og skattalöggjöf landsins, en baðst undan að taka sæti í henni. Maki (10.08.1904): Ingibjörg Þorláksson, fædd Claessen, f. 13.12.1878, d. 07.08.1970. (Foreldrar hennar: Jean Valgard van Deurs Claessen, kaupmaður á Sauðárkróki og síðar landsféhirðir, og f.k.h. Kristín Eggertsdóttir Briem). Fósturdóttir þeirra: Elly. Heimildir: Jón Vestdal og Stefán Bjarnason, Verkfræðingatal 1956. Skrá yfir friðuð hús. Húsafriðunarnefnd ríkisins. Alþingismannatal 1845-1975, bls. 247-248. Skrifstofa Alþingis gaf út, Reykjavík, 1978.
Tengd aðföng