Eysteinn Jónsson
13.11.1906 - 11.08.1993
Staða
Alþingismaður, Ráðherra
Staður
Staður: Miðleiti 7, 103-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Ítarupplýsingar
Vefbirting:
Skattstjóri á Njarðargötu 5, Reykjavík 1930. Framkvæmdarstjóri í Reykjavík 1945. Formaður Framsóknarflokksisn 1962-68 og ráðherra. Síðast búsettur í Reykjavík.
Fæddur á Djúpavogi.
Foreldrar: Jón Finnsson prestur í Hofsþingum í Álftafirði f. 17.08.1865, d.25.04.1940 og Sigríður Hansína Hansdóttir f. 02.05.1872, d.25.04.1949.
Systkin: Jakob.
Kona: Solveig Eyjólfsdóttir f. 02.11.1911.
Börn: Sigríður, Eyjólfur, Jón, Þorbergur Ólöf Steinunn, Finnur.
Störf: Alþm. S.-Múl. og Austurlands, forseti Sameinaðs þings. Skattstjóri í Reykjavík, fjármálaráðherra, viðskiptamálaráðherra, framkvæmdast. prentsmiðjunnar Eddu, menntamálaráðherra.
Alþingismaður Suður-Múlasýslu 1933–1946 og 1947–1959, alþingismaður Austurlands 1959–1974 (Framsóknarflokkur).
Varaþingmaður Suður-Múlasýslu september–október 1946 og allt þingið 1946–1947.
Fjármálaráðherra 1934–1939, viðskiptamálaráðherra 1939–1942, menntamálaráðherra 1947–1949, fjármálaráðherra 1950– 1958.
Forseti sameinaðs þings 1971–1974.
Formaður þingflokks framsóknarmanna 1934 og 1943–1969.
Heimildir:
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr.17843-2180
Alþingismannatal 1845 - 1975. Skrifstofa Alþingis gaf út Reykjavík 1978.
https://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=148
https://www.islendingabok.is/search
Tengd aðföng








